Brúðarkjólar geta haft tilfinningalegt gildi

Ásdís hefur haft brennandi áhuga á brúðarkjólum lengi.
Ásdís hefur haft brennandi áhuga á brúðarkjólum lengi. mbl.is/Arnþór Birkisson

Ásdís Gunnarsdóttir kjólameistari telur tilfinningalegt gildi brúðarkjóla mikið og ákvað því að geyma kjólinn sinn áfram. Hún aðstoðar konur við að upplifa drauminn á brúðardaginn í gegnum verslunina sína Loforð. 

Ásdís er ekki í nokkrum vafa þegar kemur að fallegustu brúði allra tíma.

Þær eru reyndar tvær en þær giftu sig þannig að myndir af þeim úr brúðkaupinu lifa í hugum heimsbyggðarinnar enn í dag.

„Það eru Grace Kelly og Audrey Hepburn. Þær giftu sig í fallegum kjólum og áttu dásamlegan brúðkaupsdag og brúðkaup sem eftir var tekið.“

Gekk lengi með hugmyndina um Loforð

Ásdís stofnaði verslunina Loforð fyrir nokkru, þar sem hún býður upp á eigin kjóla en einnig kjóla frá erlendum tískuhúsum.

„Ég lærði kjólasaum og útskrifaðist með sveinspróf 2009 en ég tók starfsnám mitt tengt brúðarkjólum hér heima á brúðarkjólaleigu en svo fór ég líka til New York 2008 og starfaði í nokkra mánuði sem nemi fyrir heimsþekktan brúðarkjólahönnuð í Soho en sú reynsla var algjörlega ómetanleg. Ég fór með lestinni í efnahverfið að sækja efni, fékk að grípa í saumavélarnar, handsauma perlur í kjóla sem kostuðu mörg hundruð þúsund en svo var ég líka mikið í því að sækja kaffi fyrir alla. Þessi reynsla gerði það að verkum að ég vissi að mig langaði að gera þetta í framtíðinni. Ég hef einnig starfað við förðun og saumaskap og vann lengi í Kjólum & konfekti. Það er einmitt vinkona mín sem á þá verslun. Ég lærði mikið af henni um rekstur og innkaup sem ég bý að í dag.“

Loforð er falleg verslun í Hafnafirði.
Loforð er falleg verslun í Hafnafirði. mbl.is/Arnþór Birkisson

Í Loforði er fjöldi erlendra brúðarkjólamerkja, skartgripa og fylgihluta auk þess sem boðið er upp á breytingar og sérsaum.

Tækifæri til að nota brúðarkjólinn tvisvar

Hvað er í tísku tengt brúðarkjólum í ár?

„Brúðarkjólatískan er mjög fjölbreytt í ár. Hún er allt frá því að vera bóhem og rómantísk klassík yfir í mjög klassíska mínímalíska kjóla. Þægindi og ákveðinn léttleiki er þó áberandi í flestum kjólum, mattar pallíettur og leikur með mismunandi áferðir.“

Hvernig telur þú að fólk skipuleggi brúðkaupið á þessu ári?

„Mér heyrist flestar sem eru að gifta sig frá og með júní vera nokkuð bjartsýnar og halda í vonina um að geta haldið brúðkaup á settum tíma. Þær sem voru fyrr hafa frestað fram á haust eða næsta ár. Einnig eru dæmi um að fólk haldi athöfnina á réttum degi og bjóði þá bara nánustu aðstandendum en fresti veislu um nokkra mánuði, sem er frábært tækifæri til að geta farið tvisvar í brúðarkjólinn.“

Gifti sig í fallegum kjól sem hún á enn

Giftir þú þig í fallegum kjól sjálf?

„Já, ég gifti mig í æðislegum pallíettukjól sem ég fékk í Kjólum og konfekti á sínum tíma.“

Hvað þurfa konur að hafa í huga þegar kemur að brúðarkjólnum?

„Mikilvægast að öllu er að vera tímanlega. Það er eðlilegt að byrja brúðarkjólaferlið ári fyrir brúðkaup, það getur tekið allt að sex mánuði að fá kjólinn afhentan og svo þarf yfirleitt að gera minniháttar breytingar eins og að stytta kjólinn og fleira í þeim dúr. Þess vegna er mikilvægt að vera tímanlega til að forðast allt stress. Einnig er mikilvægt að koma í mátun og máta ólíka kjóla. Það er mjög algengt að skoðanir og plön um kjóla breytist eftir að búið er að máta ólíka kjóla.“

Þegar kemur að aldri brúðar segir Ásdís konur á öllum aldri vera að gifta sig í dag. Algengasti aldurinn sé þó án efa þrítugsaldurinn.

Ólíkar konur velja sér ólíka kjóla

Velja þær sér eins kjóla eða er munur á milli kynslóða?

„Það er alltaf smá munur á íburði kjólanna eftir aldri en svo eru konur líka bara svo ólíkar týpur að það hefur kannski áhrif frekar en aldurinn.“

Það er hluti af upplifun brúðarinnar að velja sér fallegan …
Það er hluti af upplifun brúðarinnar að velja sér fallegan kjól að vera í. mbl.is/Arnþór Birkisson

Ásdís er á því að konur ættu að fylgja hjarta sínu þegar kemur að því hvað þær gera við brúðarkjólinn eftir brúðkaupið.

„Fyrir margar konur er kjóllinn svo miklu meira en bara kjóll sem var farið í einu sinni. Hann hefur oftar en ekki mikið tilfinningalegt gildi þegar aðdragandinn að kaupunum er svona langur og þær búnar að vera með hann í huganum í marga mánuði fyrir stóra daginn. Þeim konum getur reynst erfitt að láta kjólinn frá sér og þá finnst mér mikilvægt að þær varðveiti hann. Þær konur sem tengja öðruvísi við kjólinn og vilja gefa honum framhaldslíf ættu eindregið að koma kjólnum sínum áfram. Ég legg mikið tilfinningalegt gildi í kjólana og hef því ákveðið að geyma minn kjól áfram.“

Úrvalið af kjólum í Loforði er mikið.
Úrvalið af kjólum í Loforði er mikið. mbl.is/Arnþór Birkisson
Hægt er að versla fylgihluti í Loforði.
Hægt er að versla fylgihluti í Loforði. mbl.is/Arnþór Birkisson
Glitrandi skart fyrir brúðkaupið.
Glitrandi skart fyrir brúðkaupið. mbl.is/Arnþór Birkisson
Það má gera ýmislegt fallegt með þessu í hárið.
Það má gera ýmislegt fallegt með þessu í hárið. mbl.is/Arnþór Birkisson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál