Melania Trump kaus í kjól frá Gucci

Melania Trump í Gucci á kjörstað.
Melania Trump í Gucci á kjörstað. AFP

Melania Trump forsetafrú Bandaríkjanna mætti á kjörstað í Flórída í gær í sumarlegum kjól frá ítalska hátískumerkinu Gucci. Frú Trump kaus í Flórída og því kemur sumarlegi kjóllinn hennar ekki á óvart. 

Við kjólinn var forsetafrúin í ljósum hælaskóm frá Christian Louboutin og með tösku frá Hermes. Það er nóg til af peningum hjá Trump-hjónunum en á vef Daily Mail kemur fram að kjóll frú Trump kosti 4.500 bandaríkjadali eða um 630 þúsund íslenskar krónur. Taskan er síðan metin á 17 þúsund bandaríkjadali eða um 2,4 milljónir íslenskra króna. 

Forsetafrúin brosti til ljósmyndara en hún var ekki með grímu þegar hún mætti á kjörstað. Frú Trump greindist með kórónuveiruna fyrir rúmum mánuði á sama tíma og eiginmaður hennar. 

Klæðnaður Melaniu Trump var látlaus og sumarlegur.
Klæðnaður Melaniu Trump var látlaus og sumarlegur. AFP
Skór Christian Louboutin eru þekkjast á rauða litnum.
Skór Christian Louboutin eru þekkjast á rauða litnum. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál