„Nemendurnir ákvaðu þetta alveg sjálfir“

Nemendur í Hússtjórnarskólanum ákváðu að klæðast þjóðbúningum á útskriftinni. Búið …
Nemendur í Hússtjórnarskólanum ákváðu að klæðast þjóðbúningum á útskriftinni. Búið er að opna fyrir skráningu á haustönn en námið nýtur mikilla vinsælda. mbl.is/Eyþór Árnason

Útskriftarnemendur úr Hússtjórnarskólanum í Reykjavík klæddust glæsilegum íslenskum þjóðbúningum við útskrift úr skólanum í síðustu viku. Vani er að nemendur klæði sig upp á fyrir daginn en nemendur ákváðu að taka það skrefinu lengra að þessu sinni. Marta María Arnarsdóttir skólameistari í Hússtjórnarskólanum segir að hugmyndin hafi verið lengi á teikniborðinu. 

Hvenær kom upp sú hugmynd að klæðast þjóðbúningum á útskriftinni?

„Hugmyndin kom upp alveg fyrir löngu í byrjun skólaársins og má því segja að þetta hafi verið búið að vera lengi í bígerð. Nemendurnir ákvaðu þetta alveg sjálfir þannig þetta var engan vegin hugmynd frá skólanum. Það hefur einn og einn verið að útskrifast í þjóðbúning en ekki allir í einu áður,“ segir Marta María. 

Glæsilegur hópur útskriftarnemenda úr Hússtjórnarskólanum.
Glæsilegur hópur útskriftarnemenda úr Hússtjórnarskólanum. mbl.is/Eyþór

Finnur þú almennt fyrir meiri áhuga á íslenska þjóðbúningnum?

„Já ég myndi segja það. Fólk var oft feimið við að nota íslensku þjóðbúningana en það hefur verið að sjást meira af þjóðbúningum nágrannalanda okkar á til dæmis samfélagsmiðlum. Í Noregi til dæmis Þá eru algjörar skvísur farnar að birta day in my life myndbönd á TikTok þar sem þær eru í sínum þjóðbúningum. Ég held að það auki áhugann á að nota okkar meira.“

Hvernig nálguðust nemendur búninga?

„Meirihlutinn leigði hjá Þjóðdansafélaginu en það kom mér á óvart hversu margir gátu fengið lánað frá fjölskyldunni, ömmum, frænkum og langömmum og hvað þeir leynast víða. Síðan var ein sem saumaði sinn eigin hjá Heimilisiðnaðarfélaginu.“

Hér má sjá nemendur í 20. aldar upphlutum með ólíku …
Hér má sjá nemendur í 20. aldar upphlutum með ólíku skarti og ólíkum svuntum. mbl.is/Eyþór Árnason

Lítil breyting á aðsókn á milli ára

Marta María segir aðsókn í Hússtjórnarskólann haldast svipuð á milli ára. Mest sé pláss fyrir 24 manns í einu. 

„Skólinn hefur alltaf lagt mikið upp úr sjálfbærni og áhuginn á því hefur bara verið að aukast, skólinn er fyrir alla þó að fólk hafi bara mikinn áhuga á að prjóna eða sauma og hvort sem þau vilja læra að elda ofan í sig eða aðra líka.“

Að útskrift lokinni gerðu nemendur sér glaðan dag meðal annars með skrúðgöngu niður í bæ og fögnuðu með drykk í Iðnó. 

mbl.is/Eyþór Árnason
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda