Fyrir og eftir myndir af Ágústu Ósk

Fyrstu tvær myndirnar eru af Ágústu Ósk áður en átakið …
Fyrstu tvær myndirnar eru af Ágústu Ósk áður en átakið hófst. Myndin lengst til hægri var tekin í síðustu viku og sýnir glæsilegan árangur. mbl.is/Golli

Átakinu, 10 árum yngri á 10 vikum, er lokið. Á næstu dögum verða birtar „fyrir og eftir“ myndir af stelpunum. Ágústa Ósk Óskarsdóttir náði mjög góðum árangri í átakinu. Hún missti rúmlega fimm kíló og batnaði heilsufar hennar til muna. 

Í bókinni, 10 árum yngri á 10 vikum, eru sjálfspróf þar sem fólk getur fundið út líffræðilegan aldur sinn út frá lífsstíl sínum. Þegar Ágústa Ósk tók prófið í upphafi átaksins fékk hún þá niðurstöðu að hún væri 60 ára. Nú 10 vikum síðar er líffræðilegur aldur hennar kominn í 24 ára. Það má því segja að Ágústa Ósk hafi yngst um 36 ár. Það er enginn smá árangur.

Ágústa Ósk fékk ný baðföt fyrir „eftir“myndina hjá Selenu og Harpa Finnsdóttir hjá MAC farðaði hana.

Ágústa Ósk Óskarsdóttir er komin í toppform. Hún skartaði sínu …
Ágústa Ósk Óskarsdóttir er komin í toppform. Hún skartaði sínu fegursta í nýjum baðfötum frá Selenu. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Ágústa Ósk áður en átakið byrjaði.
Ágústa Ósk áður en átakið byrjaði. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Ágústa Ósk Óskarsdóttir áður en átakið byrjaði.
Ágústa Ósk Óskarsdóttir áður en átakið byrjaði. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Ágústa Ósk áður en átakið byrjaði.
Ágústa Ósk áður en átakið byrjaði. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál