Dásamlegt sumarpastasalat Ebbu

Ebba Guðný Guðmundsdóttir býður okkur upp á dásamlegt pastasalat sem fær kroppinn til að æpa af hamingju.

400 g spelt, kamut eða heilhveiti spaghettí eða pasta

3 hvítlauksrif

25-50 g basilika

70-100 g íslenskt klettasalat

1 dl ólífuolía (eða olían af La Selva tómötum!)

50 g rifinn parmesanostur

100 g sólþurrkaðir tómatar (til dæmis frá La Selva)

1 stk. chilli aldin (má sleppa)

sjávarsalt og nýmalaður pipar

50-70 g furuhnetur

50 g rifinn fituríkur ostur (má sleppa)

1.    Sjóðið spaghettíið/pastað eftir leiðbeiningum á pakkanum (yfirleitt um 10 mínútur og 1 msk af ólífuolíu sett út í vatnið)

2.    Setjið hvítlauk, basiliku og helminginn af klettasalatinu í matvinnsluvél ásamt helmingnum af La Selva-tómötunum, allri olíunni af þeim (og má bæta við kaldpressaðri ólífuolíu svo maukist vel), parmesan og helmingnum af furuhnetunum og maukið vel saman. Saltið og piprið eftir smekk

3.    Setjið pastað í skál og hellið pestóinu yfir og blandið vel saman

4.    Skreytið með afgagninum af klettasalatinu, tómötunum, chillí aldini smátt skornu ef vill, furuhnetum og rifnum osti (ef vill, má sleppa)

5.    Tilbúið!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál