Heiða vill komast í aðra stofnfrumumeðferð

Bjarnheiður Hannesdóttir áður en hún fór í hjartastopp, fékk heilaskaða …
Bjarnheiður Hannesdóttir áður en hún fór í hjartastopp, fékk heilaskaða og endaði í hjólastól.

„Við erum að stefna að koma aftur hingað í nóvember á þessu ári. Það fer auðvitað allt eftir því hvort við náum að fjármagna þá ferð. Þá yrðum við bara í einn mánuð og svo eftir það í einn mánuð í senn árlega, vonandi í nokkur ár. Þetta er mjög kostnaðarsamt. Þessi ferð okkar núna í 2 mánuði kostar tæpar 6,3 milljónir, það er bara meðferðin og aðstaðan, matur fyrir okkur bæði. Ofan á þetta bætist flugfarið fram og til baka og allskonar lyf og myndatökur og það telur sko, ég er alltaf að borga lyf, allskonar vítamín og ýmislegt sem til fellur. Veit ekki hver endanlegu kostnaður verður fyrri en við komum heim,“ segir Snorri Hreiðarsson maður Bjarnheiðar Hannesdóttur eða Heiðu eins og hún er kölluð á bloggsíðu hennar, heidahannesar.com.

„Svo þarf að halda öllu gangandi heima fyrir, afbogarnir af lánum og þess háttar og ég frá vinnu í langan tíma……………en þökk sé öllum þeim sem hafa lagt okkur lið í þessari baráttu, án ykkar framlags væri Heiða ekki að láta á reyna með þessa meðferð og vonandi, já vonandi verða framfarir og ef einhverjir vilja láta á þetta reyna þá erum við til í að hjálpa á allan þann hátt sem mögulegt er. Heiða er að láta á þetta reyna í von um að bæta heilsu sína og það erum nú þegar framfarir.“

Hann segir að Heiðu hafi gengið mjög vel í sjúkraþjálfun í dag þrátt fyrir að vera slæm í hægri hendi og í öxl. 

„Hún bara rúllaði þessu upp eins og henni er lagið. Þurftum nánast ekkert að hjálpa henni, bara smá þegar hún er að snúa við. Heiðu finnst sjónsviðið vera að breikka, sér meira í kringum sig. Getur þetta verið að ske - magnað.“

Eftir prógram dagsins fórum við smá göngutúr, kíktum aðeins í garðinn og svo á kaffihúsið okkar, já auðvitað var súkkulaðikaka fyrir Heiðuna með extrasúkkulað…………og ís, hva maður lifir bara einu sinni og ekki verður farið á kaffihúsið næstu daga af því að Heiða fær mænulegg á morgun og þarf að vera með hann í fimm daga……………jeiiiiiiii eða þannig. Cappucino fyrir garminn og svo er trítlað heim, sveigt á milli bíla og svínað fyrir hjólreiðamenn, já maður tekur bara þátt í umferðinni hér og verður að troða sér til að komast áfram.

Heiða Hannesdóttir í sjúkraþjálfun.
Heiða Hannesdóttir í sjúkraþjálfun.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál