Hefur þarmaflóran áhrif á svefn?

Birna Ásbjörnsdóttir.
Birna Ásbjörnsdóttir.

„Það þjást að meðaltali um 30% einstaklinga af svefnleysi einhvern hluta ævinnar. Svefn er mikilvægur þáttur í að viðhalda góðri heilsu.  Rannsóknir hafa sýnt fram á að svefn og þarmaflóra hafa veruleg áhrif hvort á annað,“ segir Birna Ásbjörnsdóttir í sínum nýjasta pistli. Hún er að ljúka meistaragráðu í næringarlæknisfræði frá Surreyháskóla og stundar meistaranám við Oxfordháskóla í gagnreyndum heilbrigðisfræðum. Birna starfar sem næringarráðgjafi hjá Lifandi Markaði og veitir fræðslu í formi fyrirlestra og námskeiða:

TAUGAKERFIÐ - meltingarvegurinn og þarmaflóran

Maðurinn á í samhagsmunalegu (symbiotic) sambandi við þær örverur sem búa í meltingarvegi hans.  Það er alltaf að koma betur í ljós hversu miklu þessar örverur ráða þegar kemur að heila- og taugastarfssemi og almennri líðan (1, 2, 3). 

Stanslaus samskipti eiga sér stað milli heila og garna og spilar þarmaflóran þar stórt hlutverk (gut-brain-microbitoa-axis). Taugakerfið og örveruflóra þarma vinna saman flókin störf (4).  Röskun á þessari örveruflóru eykur líkur á langvinnum sjúkdómum og hefur áhrif á svefn og svefngæði. 

VAGUSTAUG - boðberi alls

Taugakerfið hefur með skynjun að gera, hreyfistarfssemi og hversu vel meltingarfærin starfa.  Þarmaflóran hefur áhrif á hversu mikið af bólgumyndandi og bólgueyðandi frumuboðum fer út í líkamann.  Þessi frumuboðar hafa bein áhrif á heilann með þátttöku Vagustaugar, sem er hluti miðtaugakerfis (4).

EFNASKIPTI og svefn

Sýnt hefur verið fram á að svefnrof, sem er t.d. algengt vandamál þegar kemur að kæfisvefni, hefur áhrif á neysluvenjur.  Svefnrof raskar einnig þarmaflórunni, hagstæðum bakteríum fækkar á meðan óhagstæðum bakteríum fjölgar.  Þetta tvennt eykur líkur á fitusöfnun, einkum kviðfitu, og efnaskipavandamálum (sykursýki II, hækkaðri blóðfitu og háþrýsting).  Þessi einkenni geta síðar leitt til offitu, efnaskiptasjúkdóma og ýmissa bólgusjúkdóma (5). 

SVEFN og ofþyngd

Súrefnisþurrð getur haft áhrif á líkamsþyngd (5).  Í rannsókn sem var gerð á músum kom í ljós að þegar mýsnar fengu minnkað magn súrefnis, sambærilegt og gerist í kæfisvefni, hafði það veruleg áhrif á heilbrigði þarmaflóru þeirra. Hlutföll Firmicutes jukust á kostnað Baceroidetes.  Firmicutes ná meiri orku út úr fæðinu (eykur líkur á ofþyngd) ásamt því að draga úr/hægja á fitubrennslu (6).

MATARÆÐI - lífsklukkan og sjúkdómar

Að snúa sólahringnum við eða að “rugla líkamsklukkunni” getur raskað þarmaflórunni og haft áhrif á efnaskipti líkamans (7).  Fæðið ræður því hversu vel eða illa við höndlum slíka breytingu. 

Örverur í meltingarvegi skynja hvað, hvenær og hve mikið af fæðu er neytt.  Þær framleiða efnaskiptaboðefni í framhaldi af því.  Þar af leiðandi hefur fæði sem inniheldur hátt hlutfall sykurs og slæmrar fitu (high-fat, high-sugar Western-type diet) slæm áhrif, þar sem önnur boðefni eru framleidd en þegar hollrar fæðu er neytt.  Afleiðingin er þá m.a. offita (7).

Röskun á lífeðlislegri starfssemi (circadian rythm) hjá t.d. vaktavinnufólki og öðrum þeim sem snúa sólahringnum við eykur líkur á bólgusjúkdómum og ofþyngd.

MATARÆÐI skiptir máli

Mataræði hefur áhrif á samsetningu þarmaflóru. Heilbrigð þarmaflóra ásamt inntöku á góðum gerlum (probiotics) hefur áhrif á heilsu, dregur úr og getur komið í veg fyrir bólgusjúkóma auk þess að  hafa jákvæð áhrif á svefn og svefngæði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda