Makamissirinn hafði áhrif á heilsuna

Guðrún Bergmann.
Guðrún Bergmann. Ljósmynd/Cenk Unver

„Í þessum heimi þar sem við leggjum verðmætamat á nánast hvað sem er, þætti mér forvitnilegt að vita hvaða verðmat væri lagt á heilsuna hjá markaðsfræðingum samtímans. Ég hef ekki sett tölur á mína heilsu, en ég geri mér grein fyrir að hún er það dýrmæstasta sem ég á. Frá því ég var barn og unglingur hef ég verið að takast á við ýmis heilsufarsvandamál og leita leiða til bata eftir náttúrulegum leiðum. Í fyrstu var það gert af algerri vanþekkingu, en smátt og smátt lærði ég meira, einfaldlega af því ég var alltaf að lesa og leita,“ segir Guðrún Bergmann í sínum nýjasta pistli á Smartlandi Mörtu Maríu: 

Fyrir ekki svo mörgum árum síðan hrapaði svo heilsan mín nánast alveg niður að núlli á skalanum 1 til 10. Ég hafði alveg brennt mig út á of mikilli vinnu og streitu sem bæði tengdist makamissi, svo og vinnuálaginu. Lífsreynslan sem veikindunum fylgdi var erfið og mikil áskorun og í raun erfitt að snúa ferlinu við. Þá komu í huga minn orðin sem Hallgrímur heitinn Magnússon vinur minn var alltaf með á stofunni sinni: “Ef þú hefur ekki tíma fyrir heilsuna í dag, hefurðu ekki heilsu fyrir tímann á morgun!”Mikill sannleikur í þeim orðum.

Eftir þessa lífsreynslu mína verð ég alltaf undrandi þegar ég hitti fólk sem leggur enga áherslu á að hugsa um heilsuna. Hefur það gleymt þeirri dýrmætu gjöf sem lífið er? Er það fyrirfram búið að ákveða að það tapi hreyfigetu, þreki og áhuga á lífinu á einhverjum ákveðnum tímapunkti? Vill það ekki leggja sitt af mörkum til að svo verði ekki?

Lífaldur okkar verður sífellt lengri, en hvers virði er það ef við höfum ekki heilsu og þrek til að njóta þessara ára. Heilsan er nefnilega að mínu mati mikilvægasti hluti lífsgæðanna, því án hennar eru okkur svo margar takmarkanir settar.

Svo ég spyr: “Hvers virði er heilsan þín?”

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál