Ekki búin að kasta inn handklæðinu

K. Svava Einarsdóttir.
K. Svava Einarsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þegar ég tók það að mér að fara í gegnum þessa breytingu þá var líf mitt allt öðruvísi, á mjög stuttum tíma tók allt lífið breytingum sem ég hef þurft að laga mig að og púsla öllum mínum verkefnum saman.  Ég er búin að skipta um vinnu og hún er ekki þessi dagsdaglega 8-4 vinna heldur 12 tíma vaktir og þau hafa verið ótrúlega sveigjanleg við mig varðandi skólann en ekki er hægt að gera allt og því hefur ræktin setið á hakanum, sérstaklega þegar það eru langar vinnuvikur og skólalærdómur,“ segir K Svava Einarsdóttir sem tekur þátt í Lífsstílbreytingu Smartlands og Sporthússins í sínum nýjasta pistli: 

Ég var spurð hvort að ég væri búin að henda inn handklæðinu en það er ég svo sannarlega ekki búin að gera.  Ég er komin með góð tök á mataræðinu og hef nánast gefið upp allt kolvetni fyrir utan fljótandi en það er bara smá sem ég leyfi mér, enda getur maður ekki lokað á allt í einu.

Ég er baráttumanneskja og finnst ég hafa barist fyrir ansi mörgum í gegnum tíðina, núna berst ég fyrir því að standa mig í mörgum verkefnum í einu og kannski var það of stór biti fyrir mig að tyggja en ég er samt ekki tilbúin að gefast upp.  Þegar ég hef tekið tarnir áður hef ég kannski verið með þrjá bolta á lofti yfir ákveðinn tíma og það hefur virkað hjá mér og taldi ég mig alveg hæfa í að ráðast á öll þessi verkefni þrátt fyrir allar breytingarnar í kringum mig en núna líður mér eins og ég sé með 8 bolta á lofti og sé illa fyrir endann á því.  Þannig að ég ákvað, að í staðinn fyrir að reyna að halda þeim öllum 8 á lofti, að missa nokkra bolta og vona að þeir myndu ekki brotna illa eða gera mér lífið leitt.  Þeir boltar sem ég hef misst eru „heimilið“, „fjölskyldan“ og „vinirnir“, því miður.   

Ég man ekki hvenær ég ryksugaði síðast og ég bý næstum í unglingadrasli þar sem tími hefur ekki gefist til að halda vel utan um heimilið, ég man varla hvaða dagar eru því að þeir renna saman í eitt og þá gleymist stundum að kaupa inn eða hugsa um unglinginn eða kettina.  Ég hef ekki hitt fjölskylduna mína síðan í september og ég meira að segja gleymdi illilega að systir mín ætti afmæli síðasta laugardag og það hefur aldrei gerst áður á minni ævi að ég gleymi afmælisdegi.  Vinina hef ég ekki hitt nema brotabrot en ég reyni að vera dugleg að hringja þegar tími gefst því að þau eru klettarnir mínir og fæ ég mikinn styrk frá þeim.  

Ég verð að fá að aðskilja tvo bolta í þessu samhengi en ég er með einn bolta á lofti gagnvart Smartlands Lífssbreytingunni og annan með ræktina, ræktin hefur því miður tekið smá skakkaföllum líka en ég reyni að koma inn hreyfingu þó að það sé ekki alveg klukkustund í ræktinni með Lilju, ég er þó enn með augun á markmiðinu og neita að gefa þau upp á bátinn... ég hef barist of mikið fyrir þessu síðustu vikur, þrátt fyrir að það hafi ekki alltaf gengið upp.

Núna eru um þrjár vikur eftir og mælingar í næstu viku.  Ég ætla að steypa mér í ræktina þessa tvo frídaga sem ég hef frá vinnu þessa vikuna og reyna að púsla öllu saman til að ég nái þeim besta árangri sem ég get á þessum stutta tíma en svo mun ég klárlega halda áfram með mín markmið á mínum tíma.

Ég geri mér grein fyrir því að ég er engin ofurkona en í augum margra er ég það og ósigur er ekki til í mínum orðaforða, ég mun því gera mitt allra besta á þeim tíma sem ég hef og ekkert minna en það.  Ég næ kannski ekki þeim árangri sem ég vildi miðað við ef ég hefði allan tímann í heiminum en allur árangur er sigur í mínum augum og þakka ég öllum þeim sem hafa stutt mig og hvatt.

Nú berjumst við áfram og tökum þetta með stæl, þetta er ekki búið fyrr en feita konan syngur og hún er ekki neins staðar í sjónmáli!

K. Svava Einarsdóttir.
K. Svava Einarsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál