Áfengislaus janúar?

mbl.is/Getty

Reglulega koma fram greinar sem ýmist hallmæla eða hvetja til drykkju. Við lesum ýmist um að eitt glas af rauðvíni á dag eigi að koma skapinu í lag eða að alkóhól sé slæmt fyrir heilsuna. Hvorum megin við áfengispólitíkina sem við stöndum, eru án efa margir að velta fyrir sér að taka áfengis-lausan janúar, til að hreinsa líkama og sál. 

„Það er góð hugmynd að taka fyrsta mánuð ársins án áfengis, vegna þess að þeim mun meira sem fólk verður meðvitað um áfengisneyslu sína, þeim mun betur gengur því að átta sig á að lífsstíll án áfengis er verðugt viðfangsefni. Ég líki þessu við sykurlausan september. Þegar við breytum neysluvenjum okkar, fáum við tækifæri til að skoða okkur sjálf og taka ákvörðun til framtíðar. Það er svo mikilvægt að almenningur átti sig á að þeir sem fara ekki illa með áfengi, drekka kannski 2-3 vínglös í senn, geta upplifað slæm áhrif áfengis á taugakerfið. Þessi neysla getur verið næg til að stytta í okkur kveikinn og veikja taugakerfið,“ segir Kári Eyþórsson einstaklings- og fjölskylduráðgjafi. 

Hringdu í vin

Þegar þú hefur ákveðið að halda þig frá áfengi í janúar er gott að ræða hugmyndina við vin.

Best er að finna vin sem drekkur ekki eða hefur skilning á því sem þú ert að gera. Segðu honum ástæðuna fyrir þessari ákvörðun og gerðu samning við hann um að ef þú hringir og veltir því upp hvort þú eigir að rjúfa vínbindindið, að hann minni þig á af hverju þú fórst í þetta.

Gott er að gera samning við sig sjálfa/n í þessu samhengi. Þar eð: Ef ég næ ekki að halda mig frá áfengi í mánuð, mun ég leitast við að kynna mér betur hvað liggur þar að baki með góðum ráðgjafa.

Losaðu þig við allt áfengi á heimilinu

Þegar við förum í gegnum áfengislausan janúar, er mikilvægt að hafa ekkert áfengi á heimilinu. Biðja vin að geyma (ekki þann sem þú ert að hringja í) eða fara með út í skúr. Gott er að fylla ísskápinn af góðum drykkjum sem gaman er að drekka ef vínlöngunin kemur fram í þessum mánuði. Gott ítalskt sódavatn með appelsínu- eða sítrónubragði. Forðist að blanda óáfenga kokteila eða að vera með mat sem kallar á sérstakt vín með máltíðinni.

Haltu þig frá skemmtistöðum

Þegar þú ert tilbúin/n að halda þig frá áfengi í janúar er gott að ákveða að halda sig alveg frá freistingum og finna annað til að gera í staðinn. Ekki fara á barinn með vinunum þar sem allir aðrir eru að drekka og reyndu að sneiða hjá því að fara í veislur sem þú veist að ganga út á drykkju. Og haltu þig frá skemmtistöðum í þessum mánuði. Það getur reynst mörgum auðvelt að fara á barinn og sleppa að drekka, en af hverju að vera að taka áhættuna? Finndu þér eitthvað annað uppbyggilegt að gera í staðinn.

Farðu í nudd eða gerðu eitthvað uppbyggilegt með þeim sem þú elskar, eins og börnunum þínum og maka.

Vertu með fjölskyldunni

Þar sem áfengislaus janúar gefur þér aukinn tíma mælum við með því að þú notir hann vel með fjölskyldunni. Finndu upp á skemmtilegum hlutum til að gera með börnunum á föstudagskvöldi, og þannig verður þú heilbrigð fyrirmynd fyrir fjölskylduna að lífi án áfengis. Við mælum með bíói, keilu, göngum. Gaman er að halda fundi um slíkt vikulega, þar sem í byrjun vikunnar fá allir í fjölskyldunni að velja hvað þeir vilja gera og svo er kosið um hvað er gert hverja vikuna. Þessi hefð gæti smitast yfir í fleiri mánuði, enda er góðum gæðatíma með fjölskyldunni aldrei illa varið.

Gerðu æfingaáætlun

Gerðu áætlun um að mæta í ræktina, t.d. þrisvar sinnum í viku. Best er að ákveða fyrirfram þessa æfingatíma og jafnvel að taka með sér æfingafélaga, til að halda sér við efnið. Það getur einnig verið gott að fara til einkaþjálfara í janúar og gera matardagbók. Segðu þjálfaranum að þú sért að sneiða hjá því að drekka vín og viljir hans hjálp í að borða hollt þennan mánuð. Það hjálpar til við að halda sér við efnið. En mundu að þú vilt ekki gera of mikið í einu þennan mánuðinn, svo ekki gera ráð fyrir því að breyta mataræðinu of mikið á meðan þú ert að sneiða hjá áfengi.

Bókaðu hitting með vinum

Það er mikilvægt að átta sig á að það er hægt að hitta vini án þess að drekka og í áfengislausum janúar mælum við með því að bóka hitting með vinum vikulega. Farðu í göngur með vinum, farið í sund eða gerið eitthvað uppbyggilegt saman. Að efla tengsl í þægilegu umhverfi með þeim sem þér þykir vænt um skiptir máli

Farðu í ráðgjöf

Það getur haft áhrif á taugakerfið að drekka einungis nokkra drykki. Þess vegna getur janúar án áfengis verið góður mánuður að nýta í ráðgjöf, til að vinna úr þeim málum sem hafa flækst fyrir þér á síðustu misserum.

Vikuleg ráðgjöf, þar sem þú ert að vinna úr streitutengdum vandamálum, kvíða eða öðru sem heldur fyrir þér vöku er frábær hugmynd á meðan þú sleppir víni. Láttu ráðgjafann vita að þú sért í heilsueflandi átaki og þú viljir nota tímann til að þroskast andlega.

Hugsaðu vel um þig

Í áfengislausum janúar mælum við með því að þú setjir sjálfa/n þig í fyrsta sætið. Passaðu vel upp á þig í þessum mánuði, og reyndu að gera eitthvað bara fyrir þig á hverjum degi. Farðu í gott bað, nudd, lestu góða bók og gerðu það sem þú hefur látið sitja á hakanum. Ef þú telur þig ekki hafa efni á þessu, taktu þá saman hverju þú ert vön/vanur að eyða í áfengi á mánuði og útdeildu því fjármagni sem þú ert vanur/vön að eyða í janúar í dekur. Það sem þú munt komast að er að eftir því sem þú hugsar betur um þig, þeim mun meira hefurðu að gefa öðrum.

Finndu rétta snjallforritið

Það eru til fjölmörg snjallforrit sem hægt er að hlaða niður í símann, sem gerir það að hætta að drekka skemmtilegra. Sem dæmi má nefna Sobriety Counter sem er frábært snjallforrit með leikjarsniði sem sýnir m.a. hvað þú hefur safnað miklum peningum á því að hætta að drekka í mánuðinum, þú getur ákveðið að verðlauna þig í enda janúar með þeim peningum, farið í leik sem tekur þrjár mín. þegar þig þyrstir í vín og fleira í þeim dúrnum.

Haltu dagbók

Það getur verið gaman að halda dagbók fyrir þennan mánuðinn, þar sem algengt er að fólk upplifir breytingar á líðan sinni þegar tekinn er áfengislaus janúar. Sumir tala um að þeir hafi meiri orku, og skýrleikinn verði meiri. Aðrir tala um að mörg málefni koma upp sem mikilvægt er að vinna úr á þessum tíma. En það hjálpar að halda dagbók, og gerir ferlið áhugaverðara fyrir vikið. 

mbl.is/Getty
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál