Fæst fólk veit raunverulega hvernig fæðingar eru í raun og veru fyrr en það upplifir eina slíka, fæðir sjálft barn eða er viðstatt fæðingu en um leið eru fæðingar mismunandi. Hin ástralska Lacey Barratt tekur að sér að mynda fæðingar.
Myndir Barratt einkennast ekki af hefðbundnum Instagram-ljóma heldur sýna fæðingar eins og þær eru og afsakar ljósmyndarinn ekki hráleika myndanna. Barrett hefur birt nokkrar fæðingamyndir á Insgram-síðu sinni og fengið góðar viðtökur enda fæðing barna oft nánast eins og annar heimur sem er mörgum hulinn.
Hér má sjá nokkrar af myndum Barrett en það má meðal annars sjá mynd af henni sjálfri að bíða eftir að geta komið barni sínu í heiminn. Margar myndanna eru af heimafæðingum en hún myndar einnig fæðingar á spítölum og skurðstofum enda eru allar fæðingar fæðingar eins og Barratt orðar það sjálf.