Söfnuðu 3 milljónum á Karolina Fund

Theodóra Sæmundsdóttir og Jóhann Ólafsson.
Theodóra Sæmundsdóttir og Jóhann Ólafsson.

Dans og jóga Hjartastöðin var opnuð á haustmánuðum ársins 2017 í Skútuvogi 13a. Stofnendur stöðvarinnar þau Theodóra S. Sæmundsdóttir og Jóhann Örn Ólafsson eru fagurkerar sem gera hlutina með hjartanu. 

„Með opnun dans og jóga Hjartastöðvarinnar er langþráður draumur okkar að rætast. Við höfum fengið frábærar viðtökur bæði í aðdraganda opnunar í gegnum Karolina Fund þar sem viðskiptavinir keyptu kort í stöðinni og studdu okkur til dáða í þessu verkefni sem og eftir opnun þar sem stöðin er vel sótt,“ segir Theodóra eða Thea eins og hún er alltaf kölluð og heldur áfram. „Við söfnuðum 3 milljónum króna á Karolina Fund enda höfum við eignast dyggan stuðningshóp í gegnum árin. Í söfnuninni á Karolina Fund var hægt að kaupa sér kort, staka tíma og nokkra tíma saman. Nafnið á stærstu styrktaraðilunum okkar er prentað á gólfið.“

Theodóra Sæmundsdóttir.
Theodóra Sæmundsdóttir.

Börn eru hjartanlega velkomin

Í dans og jóga Hjartastöðinni er boðið upp á samkvæmisdans, línudans, jóga og zumba svo eitthvað sé nefnt. „Við erum einnig með öflugt barnastarf, þar sem Hrefna Hallgríms leggur hjarta sitt í að gera áhugaverða dagskrá fyrir börnin.“

Thea útskýrir dásamlegt námskeið fyrir börn allt frá eins árs, þar sem þau geta átt ánægjulega stund með þeim Skoppu og Skrítlu. En einnig er í boði krakka-zumba og fleira áhugavert fyrir börnin. Bryndís Ólafsdóttir og Thea munu kenna meðgöngu- og mömmujóga. En fleira um námskeiðin má finna á heimasíðunni: www.dansogjoga.is

Þau Thea og Jóhann hafa rekið fyrirtæki sitt saman í 17 ár. Og því má segja að opnum húsnæðis Hjartastöðvarinnar í Skútuvogi sé kærkomið heimili fyrir allt sem þau hafa verið að gera á síðustu árum.

Gera hlutina með hjartanu

Okkur lék forvitni á að vita hvaða þýðingu Hjartastöðin hefur fyrir stofnendur? „Þetta er stórkostleg tilfinning, að geta opnað okkar eigið heilsuheimili fyrir fólkið okkar þar sem við bjóðum öllum opinn faðminn í persónulegu umhverfi sem þú getur sótt þér andlega og líkamlega næringu í yfir daginn. Við gerum það sem við gerum með hjartanu og þaðan kom nafn stöðvarinnar til okkar.“

Það er greinilegt á Theu að tilgangur hennar í lífinu er að hlúa að öðrum. „Já, þetta er gríðarleg köllun hjá mér. Ég elska að finna gleðina þegar fólk finnur sig í dansinum og upplifa það þegar fólk finnur hugarró og aukinn styrk úr jóga,“ segir Thea og útskýrir að til þess að geta gefið öðrum þurfum við að vera vel nærð sjálf.

Lífsorkan það dýrmætasta

„Ég ráðlegg fólki að tjá sig í kærleika og að eiga innilegar samverustundir með fólkinu sem það elskar mest. Þegar þú nærir þig ertu að næra umhverfið í kringum þig. Almenningur í dag er undir miklu álagi. Lífsorkan er það dýrmætasta sem við eigum. Þess vegna þurfum við að muna að næra hana eins vel og við getum,“segir Thea í lokin.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál