Enginn sykur fyrir nektartökurnar

Dakota Johnson er í góðu formi.
Dakota Johnson er í góðu formi. AFP

Leikkonan Dakota Johnson fer með hlutverk Önu Steele í Fifty Shades-myndunum. Það er nýbúið að frumsýna nýjustu myndina, Fifty Shades Freed, en í henni eins og hinum myndunum er Steele oft nakin. Johnson passaði því vel upp á að vera í góðu formi. 

Í viðtali við Elle segist Johnson hafa treyst á mataræðið. Dagana sem nektarsenur voru teknar upp passaði hún að borða ekki sykur og annað sem lét hana blása út eða gerði hana þunga og sljóa. 

Hún segist einnig hafa hlaupið mikið en á tökustað var líkamsræktarhjólhýsi. Hún reyndi að nýta tímann í hádeginu ef hann gafst og gerði þá brennsluæfingar. Auk brennsluæfinga gerði hún mikið af rassaæfingum, fótalyftur meðal annars. 

Þegar önnur myndin var frumsýnd í fyrra tjáði stjönurþjálfarinn Gunnar Peterson sig um æfingar Johnson fyrir Fifty Shades Darker við Vouge. Lagði Peterson áherslu á rass, hendur og maga.

Þar var uppáhaldsæfingin var hnébeygja með tveimur handlóðum sem lyft var fyrir ofan höfuð í uppréttri stöðu eftir hnébeyjuna. 

Dakota Johnson.
Dakota Johnson. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál