Hefur ekki alltaf verið í góðu formi

Lacey Stone breytti um lífstíl.
Lacey Stone breytti um lífstíl. skjáskot/Instagram

Stjörnuþjálfarinn Lacey Stone þjálfaði meðal annars fólk í Revenge Body, sjónvarpsþætti Khloé Kardashian. Stone hefur þó ekki alltaf verið í góðu formi. 

Stone talar af reynslu þegar hún segir að það þurfi að breyta um lífstíl til þess að breyta líkamanum. „Finndu hreyfingu sem þú elskar, gefðu þér tíma til þess að breyta slæmum matarvenjum,“ segir Stone. 

Stone hafði stundað íþróttir síðan hún var ung og eftir háskóla hóf hún að kenna tíma í líkamsræktarstöð. Eftir að hafa gengið vel í New York flutti hún til Los Angeles þar sem hún þurfti að byrja upp á nýtt á allan hátt, ekki bara þegar kom að starfsferlinum. 

Lacey Stone.
Lacey Stone. skjáskot/Instagam

Hún skildi og vinur hennar dó. „Ég var mjög reið og byrjaði að drekka og borða óhollt og líf mitt var á þessum tímamótum,“ sagði hún í viðtali við USA Today. Hún ákvað að taka sig í gegn á átta vikum. Borða vel og hætti að drekka. Hún segir að líkami sinn hafi gjörbreyst á þessum átta vikum. Í kjölfarið bjó hún til átta vikna æfingaprógramm. 

„Hreysti byrjar í höfðinu, ekki líkamanum,“ sagði Stone eitt sinn í samtali við People.  Hugarfarið er mikilvægasti þátturinn. Í viðtalinu sagðist hún setja fólk sem hún þjálfar á sértakt mataræði. Í hverjum skammti er lófafylli af prótíni, eggjum, kjúklingi, fiski eða rauðu kjöti. Að öðru leyti er stærsti hlutinn grænmeti og lítill skammtur af kolvetnum. Kolvetnin segir hún nauðsynleg fyrir þá þjálfun sem hún veitir. „Vandamálið í Bandaríkjunum eru skammtastærðirnar, fólk borðar annaðhvort of mikið eða of lítið.“



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál