Bestu staðirnir fyrir detox að mati Goop

Eftir sukkið yfir hátíðirnar leita hugurinn og líkaminn að leiðum til að hreinsa sig á nýju ári. Leikkonan og heilsugúrúinn Gwyneth Paltrow hefur tekið saman áhugaverðustu detox-staðina á Goop.

The Ranch, Malibu

Ef þú ert farin/nn að skoða símann þinn um miðjar nætur að svara fyrirspurnum í vinnunni  þá er kominn tími fyrir þig að fara á The Ranch að mati Goop. Þessi staður er á vesturströnd Bandaríkjana og er sagður frábær til að losna við streitu, og ná upp jafnvægi í gegnum æfingar, mataræði, hvíld og nudd. Þeir eru þekktir fyrir granola-morgunverðinn sinn með hnetumjólk sem og heimagerðar lavender-sápur. Hér er séð fyrir hverju einasta smáatriði, til að ná fram næringu og slökun fyrir þann sem hefur týnt sér í vinnu og stressi. 

Heimasíða The Ranch. 

 

SHA Wellness Clinic, Alicante

Þetta fallega heilsuhótel stendur í dramatískri náttúrunni sem þykir svo falleg að fólk gleymir hvað það er komið til að gera. Dvölin á þessum stað getur verið allt frá tveimur dögum upp í fjórtán daga. En markmið dvalarinnar er að þú hreinsir líkama og sál frá streitu og óhollu fæði. Hægt er að stunda æfingar, vera á mismunandi fæði, fá nudd og kínverskar lækningar svo eitthvað sé nefnt. En á þessum stað starfa sálfræðingar og ráðgjafar sem geta stutt þig í áttina að því lífi sem þú þráir.

Heimasíða SHA Wellness Clinic.

Lanserhof Lans, Austurríki

Þessi staður vinnur út frá kenningum stofnanda síns, F.X. Mayr, um að ójafnvægi í meltingakerfinu skapi sjúkdóma. Byggingin er í anda vísindaskálsögu. En heilsulindin býður upp á nýjustu meðferðirnar á sviði heilsutækni til að hreinsa líkama og sál sem og eldri aðferðir sem hafa staðist tímans tönn. Þessi staður er sagður hafa breytt lífi margra til hins betra. 

Heimasíða Lanserhof Lans

Ananda, Himalayas

Að borða, biðja og elska er leiðin til bata samkvæmt þessari heilsulind sem stendur við rætur Himalaya í Indlandi. Jóga, hugleiðsla og fleira áhugavert í boði. Hver máltíð er vel útfærð til að færa frið og ró í líkamann.

Heimasíða Ananda

 

Sjá fleiri staði á Goop

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál