Við lifum á tímum framboðs og eftirspurnar. Ákveðnir hlutir þykja fallegir og sum okkar reyna að finna leiðir til að ná því. Hvort heldur sem er þegar kemur að fallegum veraldlegum hlutum eða atriðum sem tengjast líkama okkar eða sál.
Þegar við skoðum fjölmiðla skortir ekki ráðleggingar og ef marka má framboð af vörum og hlutum ættum við öll að hafa náð okkar markmiðum. Ef þig skortir hugvit þegar kemur að fjármálum, getur þú keypt þér bók um hvernig þú verður ríkur á engum tíma. Ef þig langar í sítt fallegt hár, þá eru til töflur. Snyrtivörufyrirtækin selja krem sem eiga að yngja okkur upp svo um munar. En af hverju lítum við þá út eins og við gerum? Bara svona alls konar. Eru þessar skyndilausnir ekki að virka?
Eftirfarandi atriði eru til umhugsunar fyrir þá sem eru forvitnir að lesa áfram. Þá sem langar í neðangreind atriði en hafa ekki fundið réttu pilluna við því.
Fallegur heilbrigður líkami
Heilbrigð sál vill lifa í heilbrigðum líkama og þess vegna kemur kannski ekki svo á óvart að þegar við borðum stjórnlaust, eða erum ekki að ná áramótaheitinu þegar kemur að líkamanum er vert að skoða hlut sálarinnar í þeim hluta.
Undirliggjandi þáttur við stjórnleysi eru tilfinningar. Þannig getur sá ávani að við borðum mikinn sykur stjórnlaust yfir sjónvarpinu á kvöldin, orsakast af óskýrum mörkum okkar á daginn. Sem við erum ósátt við en kunnum ekki að breyta og þess vegna borðum við yfir það. Í bókinni Codpendence no more er því haldið fram að allt að 30% meðvirkra séu í ofþyngd.
Ef þú ert ekki með líkamann sem þig langar í og þú ert búin/búinn að reyna allar töflur og trix í bókinni prófaðu þá að setja þér markmið á hverjum degi og fylgdu því eftir. Ef þér gengur dag frá degi að fara í átt að heilbrigði muntu geta kvittað undir að það er ekki til neitt sem heitir skyndilausnir þegar kemur að líkamanum.
Ef þú nærð ekki að fara eftir dagskránni, prófaðu þá að skoða hegðunina þína út frá stjórnleysi og þá tengt tilfinningum. Leyfðu þér að vera með opinn huga og slepptu öllum hugmyndum eða fordómum. Fáðu ráðgjöf frá sérfræðingi svo sem hjá Matarfíklamiðstöðinni. Þú þarft ekki að vera í mikilli yfirvigt til að skoða málin. Einungis vera í óheilbrigðum samskiptum við mat og langa í meiri upplýsingar um það.
Falleg friðsæl sál
Umræðan um kærleika er í hámæli þessa dagana, enda fermingar og hátíðlegir viðburðir víða. Ertu besta útgáfan af þér í dag? Eða er tækifæri til að fara í meiri vinnu því tengt?
Ertu friðsæl sál en annað fólk mikið að trufla þig. Í þessum flokki skortir ekki pillur, en þegar kemur að andlegu lífi, þá má gera hluti á hverjum degi til að ýta undir vellíðan þegar vandamálin eru ekki svo stór.
Ef við viljum breytingar hjá okkur, verðum við að vera tilbúin að breytast sjálf. Aðrir eru ekki á okkar ábyrgð. Þess vegna er verðugt verkefni að sleppa og treysta að allt fari vel hjá öðrum og við setjum þannig ljósið á okkur.
Ef við erum besta útgáfan af okkur, þá höfum við meira að gefa öðrum.
Ef ég er orðin/orðinn góðkunningi gremju, ótta og hroka þá er verðugt verkefni að skoða af hverju? Slíkir brestir geta orðið að þráhyggju sem bíða eins og lest eftir að komast að okkur. Ef við óttumst eitthvað sérstakt þá er ekkert minna vont að lenda í því þótt við höfum verið að velta okkur upp úr því áður. Prófaðu að skoða 12 spora kerfið í kirkjunum, hjá Al-anon eða Kóda-samtökunum. Það er nóg af leiðum í boði fyrir þá sem eru tilbúnir að fá eitthvað meira í lífinu. Eins er Lausnin með frábæra ráðgjafa til að leiðbeina í þessum málum.
Greinin er ekki stíluð að þeirri hugsun að við eigum öll að vera eins. Heldur að þeirri grunnhugmynd að skyndilausnir virðast ekki virka.