Brjóstin fyrst til þess að hverfa

Bella Thorne forðast brennsluæfingar þegar hún fer í ræktina.
Bella Thorne forðast brennsluæfingar þegar hún fer í ræktina. AFP

Leikkonan og fyrrverandi Disney-stjarnan Bella Thorne er ekki örugg með menntun sína en segist vera frekar sjálfsörugg með líkama sinn. Í viðtali við tímaritið Shape segist samt Thorne stundum vakna upp og ekki kunna vel við það sem hún sjái, hún reynir þá að vera jákvæð og hugsa til upprunans en hún ólst upp á ströndinni í bikiní. 

Thorne tekur rispur í ræktinni eins og svo margt annað fólk. Nýlega byrjaði hún aftur að mæta í ræktina en hún segist ekki gera brennsluæfingar þar sem hún léttist svo mikið við það og segir að brjóstin sín séu fyrst til að fara. Í stað þess lyftir hún lóðum, boxar og fer í pilates og jógatíma. 

Leikkonan reynir að lifa heilbrigðu líferni en gleymir þó oft að sofa. Hún segist vera mest skapandi frá níu á kvöldin til hálffjögur á nóttinni. Það kemur sér mjög illa þegar hún þarf að mæta á kvikmyndatökustað klukkan hálffimm á nóttinni. Þegar hún er of þreytt verður sóríasis-sjúkdómur hennar slæmur og hún fær verri bólur. 

Thorne er dugleg að borða prótínríkan mat þegar hún er að byggja sig upp eins og hún hefur áður greint frá á samfélagsmiðlum. Grísk jógúrt og tvö harðsoðin egg er þá eitthvað sem Thorne fær sér í morgunmat. 



Bella Thorne.
Bella Thorne. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál