Þetta gerir Júlía á sunnudögum

Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi.
Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi. mbl.is/Haraldur Jónasson / Hari

Júlía Magnúsdóttir notar sunnudaga til að undirbúa komandi viku svo hún detti ekki í eitthvað rugl varðandi mataræði sitt. Hún segir að þetta sé góð leið til að halda sig á beinu brautinni. Í sínum nýjasta pistli á Smartlandi útskýrir Júlía fyrir lesendum hvernig hún geri þetta: 

Það er orðin föst rútína hjá mér að undirbúa vikuna í eldhúsinu á sunnudögum, og hefur það spilað lykilhlutverk í að ég haldi mér við heilbrigðan lífsstíl!

Ég geri þá nokkrar einfaldar uppskriftir sem flýta fyrir eldamennskunni og geri ísskápinn að nokkurs konar „hollustu sjálfsala“ ef svo má segja (ólíkt hefðbundnum sjálfsölum sem við sjáum víða með samlokum og súkkulaði). Minn er þá fullur af fallegum chiagrautum, tilbúnum réttum og sósum.

Ég hvet alla til að gefa sér klukkustund yfir helgina svo réttir vikunnar taki síðan ekki nema 15-30 mínútur. Hér eru nokkur góð ráð til þess að gera hollustu aðgengilegri fyrir þig yfir vikuna og minnka líkurnar á því að þú grípir í skyndibita.

  • Í ísskápnum er gott að eiga grænmeti og ávexti til að nota milli mála og í rétti vikunnar.
  • Kínóa er æðislegt til að nota yfir salöt eða dressingar
  • Hummus er góður til að eiga og nota yfir salöt eða á góða brauðsneið eða hrökkbrauð.
  • Dressingar gera síðan salötin oft miklu meira spennandi og flestar dressingar geymast í allt að viku í kæli.
  • Gott er að eiga chiafræ sem hafa verið lögð í bleyti í ísskápnum. Chiafræin blása út í vökva og fá búðingskennda áferð, þannig eru þau auðmeltanlegri og frábær til að bæta útí búst, drykki eða jógúrt. Þau geymast þannig í allt að fimm daga.
  • Þessi Kókosjógúrt eru frábær til að grípa í morgunmat eða milli mála.
  • Hrákúlur sem seðja sykurlöngunina. Annað gott ráð er að eiga eitthvað sætt til að grípa í þegar sykurlöngunin læðist upp að manni. Það er algjör lúxus að eiga þessar dásamlegu orkukúlur í kæli til að fá sér með góðri samvisku.

HÉR er síðan ókeypis leiðarvísir með fleiri uppskriftum sem þú getur sótt og stuðst við ef þú prófar að fylgja þessum ráðum.

Hollar kókoskúlur er hægt að útbúa á sunnudögum.
Hollar kókoskúlur er hægt að útbúa á sunnudögum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál