Drekkur bara vatn og hætti í brauðinu

Missy Elliott er að taka mataræðið í gegn.
Missy Elliott er að taka mataræðið í gegn. skjáskot/Instagram

Leyndarmálið á bak við betri líðan og fallegra útlit er ekki bara hreyfing heldur líka mataræðið. Rappkonan Missy Elliott veit það vel enda tók hún mataræðið í gegn fyrir fjórum mánuðum. 

Work It-rapparinn greindi frá því á Instagram á dögunum að það hún væri hætt að drekka djús og gos og drykki bara vatn. Auk þess að passa það sem hún drekkur er Elliott hætt að borða brauð en þessar breytingar segir hún hafa verið erfiðar. 

Elliott sem segist aldrei hafa drukkið sérstaklega mikið vatn er ánægð með áhrifin af breytta lífstílnum þrátt fyrir að það hafi tekið á. Hún segir að vatnsdrykkjan hafi hjálpað húð hennar en sjá má á myndinni sem hún birti á Instagram að hún ljómar öll. 

Það er gott ráð að fara hægt í sakirnar þegar það á að taka lífstílinn í gegn og það hefur Elliott gert. Næst á dagskrá hjá rapparanum er að taka út allan skyndibita en Elliott segir að skyndibiti sé hennar veikleiki. Elliott er líklega ekki bara í lífstílsbreytingunni vegna þess að hún vill líta betur út heldur líka vegna þess að hún glímir við sjúkdóm sem hefur áhrif á skjaldkirtilinn.  

Missy Elliott á ofurskálinni ásamt Katy Perry.
Missy Elliott á ofurskálinni ásamt Katy Perry. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál