Líkaminn virðist breyttur með nýrri stöðu

Step Smith tók létta sýnikennslu í því hvernig hægt er …
Step Smith tók létta sýnikennslu í því hvernig hægt er að blekkja á Instagram. skjáskot/Instagram

Það getur verið hættulegt að bera sjálfan sig saman við samfélagsmiðlastjörnur sem eru með það á hreinu hvernig best er að taka myndir fyrir Instagram, með tilliti til þess að líta vel og ekki síst mjórri út. 

Samfélagsmiðlastjarnan Steph Smith er dugleg að birta myndir af sér á sundfötum og í ræktinni. Um daginn birti hún þó myndir af sér frá góðu og slæmu sjónarhorni. Eins og sjá má á myndum Smith er ekki sama hvernig mynd er tekin. 

Smith skrifar við myndina að lýsing, sjónarhorn og rétt stelling geti skipt öllu máli. Það hugsi allir út í það, og það sé í lagi. Hún hvetur því fólk til þess að sleppa því að bera sig saman við samfélagsmiðlastjörnur. Einnig segir hún að það sé mikilvægt fyrir fólk sem er með marga fylgjendur á Instagram að sýna raunveruleikann og sýna að lífið sé ekki alltaf fullkomið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál