Bestu magaæfingar Kim Kardashian

Kim Kardashia er dugleg að gera magaæfingar.
Kim Kardashia er dugleg að gera magaæfingar. AFP

Sá líkamshluti Kim Kardashian sem vekur hve mesta athygli er án efa afturendinn. Raunveruleikastjarnan er þó ekki síður dugleg að gera magaæfingar en rassaæfingar en hún leggur mikla áherslu að halda mittinu grönnu til að ýkja línurnar. 

Melissa Alcantra þjálfar Kardashian klukkan sex á morgnana en nýlega ljóstraði hún því upp í viðtali við Women's Health  að þó svo að flestar æfingarnar sem þær gerðu reyndu á miðjuna legðu þær sérstaka áherslu á að gera magaæfingar einu sinni í viku. Um leið sýndi Alcantara æfingarnar sem Kardashian gerir oft á æfingum. 

Fótalyftur á bakinu

Alcantara leggur áherslu á að bakið liggi í gólfinu allan tímann á meðan fótum er lyft og mælir því með að setja hendur undir rassinn í byrjun. Í stað þess að byrja uppi eins og oft er gert leggur Alcantara áherslu á að lyfta fótum og höfði aðeins frá gólfi og byrja þar. Beinum fótum er síðan hægt og rólega lyft upp í 90 gráður og niður sömu leið. Hún mælir með fjórum umferðum af 12 til 20 endurtekningum. 

Fótunum er lyft upp í 90 gráður.
Fótunum er lyft upp í 90 gráður. mbl.is/Thinkstockphotos

Öfugt V

Markmiðið í þessari æfingu er að hoppa úr plankastöðu með fætur í átt að höndum þannig líkaminn myndi öfugt V, síðan er hoppað til baka í plankastöðu. Alcantara mælir hér einnig með fjórum umferðum af 12 til 20 endurtekningum.

Markmiðið er að mynda öfugt V þegar hoppað er saman.
Markmiðið er að mynda öfugt V þegar hoppað er saman. mbl.is/Thinkstockphotos

Að hjóla á bakinu með klappi

Í þessari æfingu byrjar fólk liggjandi og teygir hendurnar út frá líkamanum, höfuð og hendur lyftast aðeins upp frá gólfi. Síðan er eitt hné dregið í átt að brjóstum rétt eins og verið sé að hjóla en í stað að halda utan um hnéð eins og myndin sýnir er markmiðið að klappa saman lófum undir hnénu. Alcantara mælir með fjórum settum en klappa ætti undir vinstri og hægri fæti 12 til 20 sinnum, sem sagt 24 til 40 klöpp í hverri umferð. 

Í stað þess að halda utan um fótinn mælir Alcantara …
Í stað þess að halda utan um fótinn mælir Alcantara með að klappa undir fætinum. mbl.is/Thinkstockphotos
Kim Kardashian er í góðu formi enda æfir hún mikið.
Kim Kardashian er í góðu formi enda æfir hún mikið. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál