Hvernig fæ ég húðina til að dragast saman?

Hvernig er best að losna við aukahúð spyr íslensk kona …
Hvernig er best að losna við aukahúð spyr íslensk kona sem er búin að léttast mikið. mbl.is/ThinkstockPhotos

Þórdís Kjartansdóttir, lýtalæknir á Dea Medica, svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá íslenskri konu sem hefur grennst mikið og á í vandræðum með húðina. 

Sæl Þórdís

Er eitthvað sem þú mælir með að prófa til að fá húðina til að dragast saman eftir mikinn fitumissi áður en ég færi að hugsa um aðgerð?

Kveðja,

ein í húðtjaldi

 

Þórdís Kjartansdóttir, lýtalæknir á Dea Medica.
Þórdís Kjartansdóttir, lýtalæknir á Dea Medica. mbl.is/Styrmir Kári

 

Sæl og takk fyrir spurninguna.

Ég ætla að byrja á því að óska þér til hamingju með þyngdartapið.

Ég mæli alltaf með því að vera duglegur að þjálfa undirliggjandi vöðva og almennt líkamann meðan á þyngdartapi stendur, þá fylgir húðin almennt betur með. Vissulega er mikið teygð húð stundum slitin og þá dregst hún síður saman. Þú getur byrjað á því að þjálfa reglulega og byggja vöðvana upp, þú átt örugglega eftir að sjá einhvern mun á þér. Síðan er almennt gott að hugsa vel um húðina með góðum rakakremum og léttu nuddi.

Gangi þér vel og bestu kveðjur,

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir.

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Þórdísi spurningu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál