Af hverju flestir ná ekki að breyta um lífsstíl

Sara Barðdal er ÍAK-einkaþjálfari og heilsumarkþjálfi.
Sara Barðdal er ÍAK-einkaþjálfari og heilsumarkþjálfi. Ljósmynd/Aðsend

Sara Barðdal, ÍAK-einkaþjálfari og heilsumarkþjálfi, skrifar um hvers vegna flestir ná ekki að breyta um lífsstíl. Þann 17. ágúst fer hún af stað með tíu daga heilsuáskorun þar sem hún aðstoðar þáttakendur við að setja sér markmið og ná þeim.

Af hverju setja sér allir áramótaheit um að ætla sér loksins að komast í „besta form lífs síns“ og enda síðan á andlitinu í byrjun febrúar? 

Það er ekkert eitt svar við því, engin ein töfralausn. EN það eru nokkrir hlutir sem við getum gert til þess að auka líkur á árangri, til þess að minnka áhættuna á að detta ofan í holu hindrana og komast ekki upp aftur. 

Í dag langar mig að deila fjórum ráðum með þér í þeirri von að þú vandir betur markmiðasetninguna þína og hafir þetta í huga næst þegar þú ætlar að ráðast í nýtt verkefni eða gera tilraun til að breyta venjum, þá sérstaklega varðandi heilsuna. 

1. Þú tengist markmiðum þínum ekki nægilega og setur ekki í efstu forgangsröð

Eitt stórt atriði sem stoppar flesta við að ná markmiðunum sínum er að fólk tengist þeim ekki nógu miklum tilfinningalegum böndum. Þetta verður aldrei eitthvað sem þú „verður að ná“ heldur er alltaf í flokknum „þetta væri næs“ eða „það væri nú gaman ef þetta mundi gerast.“ 

Sérðu muninn? 

Á meðan þú notar orðalag eins og „ég ætla að reyna“ eða „kannski gæti þetta gerst“ ertu því miður að halda þér fastri á sama stað. Því það er svo auðvelt að gefast upp við fyrsta hliðarskref varðandi markmið sem þú hefur ekki tengst, og segir þá við sjálfan þig. „Nú jæja, ég reyndi að minnsta kosti.“ 

En þegar þú hefur tekið þessa innri ákvörðun um að „þú ætlir eitthvað, og að það skuli gerast“ þá bakkar maður ekki við fyrstu hindrun sem kemur upp, því þær munu koma, það er eitt sem víst er.  

Segðu frekar við sjálfan þig að „þú ætlir“ og að „þú munir“, þessi litla breyting á orðalagi og hvernig þú talar um markmiðin þín munu skipta sköpum.

2. Þú missir einbeitinguna og gleymir þér í rútínunni þinni

Annað atriði er að fólk missir fókus á „af hverju“ það byrjaði á ferðalaginu og af hverju það vill ná markmiðinu sínu. Hugurinn okkar er mjög auðveldlega afvegaleiddur, við erum fljót að missa einbeitingu, gleyma og byrja að elta næsta glansandi hlut. Það er upp á okkur komið að vera stöðugt að minna okkur á markmiðin okkar og af hverju við viljum ná þeim. Annars tekur gamall vani yfir og þú ert fljótt farin(n) af nýju brautinni sem þú varst svo ákveðin(n) í að fara í upphafi. 

Skrifaðu þau á stað þar sem þú sérð þau daglega, settu þau upp myndrænt, í dagbókina þína eða á spegilinn. Hvað sem hentar þér best og virkar fyrir þig sem áminning. 

3. Þú hefur ekki trú á sjálfa(n) þig

Margir eru á þeim stað í dag að þeir hafa ekki trú á að þeir muni nokkurn tíma ná markmiðunum sínum yfir höfuð. Þú hefur kannski sett þér markmið og klúðrað því svo oft að þú ert meðvitað eða ómeðvitað byrjuð/aður að segja við sjálfa(n) þig að „þú getir þetta ekki“, „af hverju að reyna, ég klúðra öllu hvort eð er.“

Þarna erum við komin í slæman vítahring, fyrri tilraunir hafa mistekist og því eru framtíðartilraunir dæmdar til að gera það sama, þar sem viðkomandi hefur misst alla trú á sjálfan sig um að vera fær um breytingar. 

Ef þú ert á þeim stað þá hvet ég þig til þess að hugsa „af hverju ekki ég?“ „af hverju get ég ekki breyst eins og aðrir?“ 

Því það eru ótalmörg dæmi um fólk sem hefur náð fram varanlegum breytingum varðandi heilbrigðan lífsstíl, ég sjálf meðtalin, og endalaust af konum sem hafa verið í þjálfun, sem eru lifandi dæmi um að þetta er mögulegt! Sama hversu margar misheppnaðar tilraunir hafa verið gerðar í fortíðinni. 

4. Fólk setur einungis markmið varðandi útlit

Þarna klikka margir! Því það er alls ekki nóg að setja aðeins markmið um kílóatölu eða six pack. Jú það getur hjálpað þér til að byrja með, en þegar erfiðu dagarnir koma upp og þig langar til þess að hætta, þá er það EKKI draumurinn um six-packinn sem heldur þér á réttu brautinni. 

Þú þarft að vilja eitthvað meira, betri lífsgæði, meiri orku, meira jafnvægi, betri heilsu, minni líkur á sjúkdómum, meiri styrk (innri og ytri), að vera góð fyrirmynd fyrir börnin þín, vera glaðari í daglegu lífi og svo framvegis. 

Þú þarft að finna hvað það er fyrir þig og hafa það ofarlega í huga, því einungis kílóatölur munu ekki vera nóg til þess að halda hvatningunni gangandi til lengri tíma. 

Tíu daga heilsuáskorun Söru hefst 17. ágúst og mun hún fara dýpra í það af hverju flestir ná ekki markmiðum sínum og ná ekki að breyta um lífsstíl.

Hægt er að skrá sig frítt í 10 daga heilsu­áskor­un á www.hiit­fit.is/​hiit­fit-askor­un/

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál