Missti 28 kíló á ketó

Það er mikill munur á Jennu Jameson síðan hún byrjaði …
Það er mikill munur á Jennu Jameson síðan hún byrjaði á ketó. skjáskot/Instagram

Klámmyndastjarnan Jenna Jameson hefur misst rúm 28 kíló síðan hún byrjaði á ketó-mataræðinu. Jameson hefur verið dugleg að segja frá árangri sínum á samfélagsmiðlum

Jameson segir að mataræðið hafi hjálpað sér að bæta líðan sína, látið sér líða eins og hún væri klárari og sjálfsöruggari en það hafi oft reynt á. Að sögn Jameson reyndi það töluvert á andlegu hliðina að grenna sig og segir að hún hafi hatað að fara út úr húsi þegar hún var þyngri. Hún hafði heldur ekki trú á því að hún gæti létt sig. „Ég get sagt að andlega líðanin er sterk. Mér líður eins og ég geti gert allt,“ skrifaði Jameson á Instagram. 

Jenna Jameson árið 2013.
Jenna Jameson árið 2013. Jason Merritt

Stjarnan byrjaði á mataræðinu þegar hún fór að huga að því að grenna sig eftir að hún eingaðist sitt þriðja barn í apríl í fyrra. Hún komst að því á mataræðinu að líkami hennar vildi að hún væri tæp 57 kíló. Þyngst var hún 85 kíló og ekki ólétt. Það var ekki draumaþyngd Jameson sem vildi vera einungis 50 kíló. Hún áttaði sig sem betur fer á að hún þyrfti ekki að vera í stærð 0 til þess að vera elskuð. 

Jameson fastar meðfram því að vera á mataræðinu og segist í dag sjá heilbrigði og hamingju þegar hún líti í spegil. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál