Leikkonan Susan Lucci er búin að finan út hvernig maður heldur sér í formi á áttræðisaldri. Aldur er greinilega afstæður!
Hún útskýrði fyrir Womans Health á dögunum hvernig hún heldur sér í formi; með því að mæta sex sinnum í viku í ræktina. Hún byrjar hvern dag á æfingum og þann dag sem hún æfir ekki gerir hún samt eitthvað uppbyggilegt fyrir líkamann. „Líkami minn biður um æfingar á hverjum degi, svo ég sinni því,“ segir hún í viðtalinu.
Lucci gerir pílates og reynir að halda í hæð sína með þeim hætti. Hún heldur úti eigin síðu á Instagram þar sem hægt er að fylgjast með hvernig hún æfir líkamann.