Sleppir aldrei þessari æfingu

Kourtney Kardashian er dugleg að mæta í ræktina.
Kourtney Kardashian er dugleg að mæta í ræktina. AFP

Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian er þekkt fyrir að vera í frábæru formi. Hún leyfir sér ekki mikið og borðar og æfir eftir ströngu prógrammi. Hingað til hefur hún ekki verið jafn dugleg að deila æfingum sínum eins og systir hennar Khloé en það breyttist í vikunni. 

Samkvæmt Cosmopolitan upplýsti Kourtney á lokuðu smáforriti sínu að kassahopp væri sú æfing sem hún sleppti aldrei. Kourtney hoppar að minnsta kosti 30 sinnum upp á kassa þegar hún fer í ræktina og á það pottþétt stóran þátt í því í hversu góðu formi hún er. 

Æfinguna, sem reynir vel á rass- og lærvöðva, er í raun hægt að gera hvar sem er svo lengi sem fólk er með einhverja upphækkun. Ef fólk er að byrja er gott að byrja með lítinn kassa og svo er hægt að hækka þó svo að hæðin á hoppinu skipti meira máli en hæðin á kassanum. 

Kassahopp eru góð æfing.
Kassahopp eru góð æfing. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál