Svona hugar Harry að heilsunni

Harry sást skarta nýjum hring í Ástralíu.
Harry sást skarta nýjum hring í Ástralíu. AFP

Harry ætlar greinilega að passa upp á að hann verði í góðu formi þegar hann verður faðir næsta vor. Á meðan sumir nota heilsuúr til þess að fylgjast með hreyfingu sinni hefur Harry sést skarta svörtum heilsuhring á ferðalagi sínu um Ástralíu. 

Hringurinn sem Harry er með er af gerðinni Oura. Hægt er að nota hringinn til þess að fylgjast með hreyfingu sinni en sérstök áhersla er lögð á svefn. Hringurinn tengist smáforriti þar sem má greina mismunandi svefnstig fólks. 

Til eru nokkrar gerðir af hringnum en samkvæmt People er sá sem Harry notar af gerðinni Heritage. Á heimasíðu fyrirtækisins er hægt að panta slíkan hring fyrir 299 Bandaríkjadali eða 35 þúsund krónur. 

Hérna sést Harry með hringinn í heimsókn hans og Meghan …
Hérna sést Harry með hringinn í heimsókn hans og Meghan til Ástralíu. AFP
Svona hring notar Harry til að fylgjast með heilsunni.
Svona hring notar Harry til að fylgjast með heilsunni. Skjáskot/Oura
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál