Byrjar daginn á nokkrum heilsutrixum

Lea Michele lítur á mat sem eldsneyti fyrir líkamann.
Lea Michele lítur á mat sem eldsneyti fyrir líkamann. AFP

Glee-stjarnan Lea Michele er í hörkuformi eins og sást þegar hún mætti á rauða dregilinn í vikunni í stuttum hlýrakjól. Leikkonan, sem er á leiðinni upp að altarinu, greindi frá því í lok sumars í viðtali við Us Weekly hvernig hún héldi sér í formi. 

Það fyrsta sem Michele gerir eftir að hafa fengið nægan svefn er að fá sér að drekka. Hún er ein af þeim sem hafa vanið sig á sítrónuvatn en þá drekkur fólk gjarnan volgt vatn með sítrónusafa út í áður en það borðar á morgnana. Annað sem Michele gerir á morgnana er að drekka sellerísafa, sem hún segir hafa góð heilsusamleg áhrif auk þess sem það sé góð hreinsun á morgnana. Hún segir safann líka bæta meltinguna. 

Hún segist borða til þess að fá eldsneyti. „Ég borða ekki skyndibita, ég borða ekki unna matvöru. Ég er bara með ferskt og hollt hráefni heima hjá mér svo mér líði sem best,“ sagði Michele. 

Ásamt því að borða hollt hreyfir hún sig reglulega. Hún fer í jóga í heitum sal einu sinni til tvisvar í viku og spinning tvisvar í viku. Hún nýtur þess svo að fara í fjallgöngur þess á milli. 

Lea Michele.
Lea Michele. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál