Kemur á bleiku skýi úr sjósundinu

Guðmunda Magnúsdóttir stundar sjósund.
Guðmunda Magnúsdóttir stundar sjósund.

Guðmunda Magnúsdóttir er ein af þeim sem fara hlaupandi í gegnum lífið. Hún er dugleg í sjósundi á veturna og finnst fátt betra en að hlaupa um í þeim borgum sem hún heimsækir hverju sinni. 

Guðmunda er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum. Hún er önnur í röðinni af fimm systkinum.

„Ég var á tólfta ári er eldgosið í Eyjum hófst og flutti þá til Reykjavíkur og nokkrum mánuðum síðar til Ísafjarðar en við fluttum síðar á árinu aftur til Vestmannaeyja.

Snemma kom upp sundáhugi hjá mér. Á mínum æskuárum voru ekki sundæfingar í boði en ég notaði þó hvert tækifæri til að synda sjálf. Þetta var mitt eina sport á yngri árum. Ég hef alla tíð verið orkumikil. Ég stundaði hlaup að einhverju leyti eftir tvítugt en segja má að ég hafi byrjað að hlaupa fyrir alvöru á fertugsaldri.“

Guðmunda er flugfreyja hjá Icelandair.
Guðmunda er flugfreyja hjá Icelandair.

Hlaup veitir frelsi

Guðmunda útskýrir hlaup þannig að þú getir stundað þau alls staðar. „Þannig færðu ákveðið frelsi og getur nýtt þér það til yndisauka. Sem dæmi þar sem ég starfa sem flugreyja get ég skoðað borgirnar sem við fljúgum til á hlaupum.“

Hvað geturðu sagt mér um útihlaup á veturna?

„Ég hleyp allan ársins hring og finnst vetrarhlaupin ekki vera síðri en að hlaupa á sumrin. Maður er svo ferskur í kuldanum, þegar hálkan er þá er ég á negldum hlaupaskóm. Í desember er boðið upp á kirkjuhlaup og ég hef tekið þátt í kirkjuhlaupi frá Kópavogskirkju og einnig frá Seltjarnarneskirkju.

Í þessu skemmtiskokki er hlaupið á milli kirkna og endað í heitu kakói á upphafsstað hlaupsins.“

Stundar sjósund af kappi

Geturðu nefnt mér fleira sem þú gerir yfir veturinn sem þú mælir með?

„Ég reyni að stunda þrektíma, þó mest á veturna þegar ég kem því við hjá Þórhöllu í World Class á Seltjarnarnesinu en hún er með frábærar styrktaræfingar og skemmtilegan hóp kvenna. Sjósund stunda ég af kappi og hef gert síðastliðin tíu ár, það geri ég allan ársins hring. Mér finnst ég fá meira út úr því á veturna þar sem kuldasjokkið er svo frábært, sérstaklega í frostinu. Sjósund er allra meina bót og mæli ég tvímælalaust með því fyrir flesta, það er gott fyrir líkama og sál. Þú mætir stundum grár og gugginn í víkina en kemur til baka á bleiku skýi. Fyrir nokkrum árum tók ég þátt í árlegu sundi frá Skarfakletti út í Viðey; fór fram og til baka. Það var frábær upplifun þótt kalt væri.“

Tók hálfan Járnkarl

Hvað finnst þér áhugaverðast við veturinn?

„Í raun og veru er ég ekki mikil vetrarmanneskja, ég skíða ekki en skautaði sem barn og hef skautað á fullorðinsárum en hlaup og sjósund eru mitt sport á veturna.

Best finnst mér að fara eldsnemma út á morgnana að hlaupa, það er minn tími.

Ég dembdi mér í þríþraut fyrir tveimur árum og náði að taka hálfan Járnkarl. Ég stefni á að byrja aftur í þríþraut í desember þegar ég hef lokið maraþoni sem ég er að æfa fyrir, en það er í nóvember nk.“

Borðarðu öðruvísi fæði á veturna?

„Fæðið er alltaf svipað hjá mér en ég borða þó mun meira af grænmeti og ávöxtum á sumrin. Drekk aldrei gos og reyni að halda sykri í skefjum upp á betri líðan, þó er uppáhaldsvetrardrykkurinn minn heitt súkkulaði með miklum rjóma og neita ég mér ekki um það.“

Góður hlýr fatnaður mikilvægur

Áttu þér staðalbúnað í klæðaburði á veturna?

„Já. Loðfóðruð UGG-leðurstígvél, sem margir myndu fussa við í dag, „parajumpers“-úlpuna mína, sem er eins og feldur, og ekki get ég verið án húfu og vettlinga.“

Ferðu í frí á veturna?

„Ég hef ekki farið mikið í frí á veturna, fór þó í fyrsta sinn til Tenerife síðstliðinn vetur og í fyrra fór ég í þríþrautaræfingabúðir á Fuerte Ventura sem ég stefni á að fara aftur í í vetur.

Ég á góða frænku í nágrenni New York sem ég skýst mikið til í stuttar ferðir.“

Hvað er best að gera með fjölskyldunni á köldum vetrarkvöldum?

„Í dag eru börnin mín uppkomin en hér áður fyrr fannst mér notalegt að kúra í sófanum og horfa á ævintýramyndir með þeim í sjónvarpinu, einnig spiluðum við oft og ég las mikið fyrir þau.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál