Má halda haustpestunum í skefjum?

Kamilla Sigríður Jósefsdóttir sérfræðingur í smitsjúkdómum.
Kamilla Sigríður Jósefsdóttir sérfræðingur í smitsjúkdómum. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Betra er að hnerra í olnbogabótina en á handarbakið og reglulegur handþvottur með vatni og sápu getur gert heilmikið gagn. Gæta þarf að því að sjúklingurinn drekki nægan vökva og fái góða næringu. 

Öll þekkjum við þessa óskemmtilegu tilfinningu: eina stundina leikur allt í lyndi en svo er eins og ósköpin dynji á: Fyrst kemur kannski hnerri eða ónotatilfinning einhvers staðar í líkamanum. Ef til vill vitum við ekki að eitthvað er að fyrr en vekjaraklukkan hringir snemma morguns og við finnum að líkaminn er ekki eins og hann á að sér að vera: vetrarpestin er komin og fátt annað hægt að gera en að liggja uppi í rúmi.

En það má reyna að snúa á pestina, eða a.m.k. draga úr líkunum á smiti og reyna að komast hraðar og betur í gegnum veikindin. Kamilla Sigríður Jósefsdóttir er sérfræðingur í smitsjúkdómum barna hjá sóttvarnasviði Landlæknisembættis og segir hún að einföld ráð eins og að hnerra í olnbogabótina frekar en lófann, og að þvo hendurnar samviskusamlega með vatni og sápu geti gert töluvert gagn:

Hún segir olnbogabótina betri en handarbakið þegar kemur að því að grípa fyrir vitin þegar þarf að hnerra, enda markmiðið bæði að afstýra því að pestin berist með lofti og með snertingu: „Í samskiptum okkar við annað fólk getur það hæglega gerst að það snerti á okkur handarbakið, en það er sjaldan að aðrir grípa um olnbogabótina á okkur,“ útskýrir Kamilla. „Ef niðurgangspestir eru að ganga er sérstaklega mikilvægt að þvo hendurnar vel með vatni og sápu eftir hverja klósettferð, og að fólk hafi hendurnar hreinar áður en það býr til mat fyrir sjálfa sig eða aðra. Ættu þeir sem eru með niðurgang eða sinna börnum með niðurgang að gæta alveg sérstaklega vel að handþvottinum.“

Noti sótthreinsandi efni í hófi

Aðspurð hvort bakteríudrepandi gel og úðar geti hjálpað segir Kamilla að handþvotturinn sé almennt mikilvægari. Það megi nota sótthreinsandi gel, t.d. þegar komið er að matmálstíma og hvergi hægt að komast í rennandi vatn og sápu, eða ef engin óhreinindi eru sjáanleg en berar hendurnar hafa komið við t.d. hurðarhúna sem margir snerta. Hún ráðleggur að nota sótthreinsandi efni í hófi: „Við höfum á okkur hjúp af örverum sem margar gera heilmikið gagn. Að bera á bakteríudrepandi efni að óþörfu getur raskað jafnvægi örveruflórunnar og mögulega orðið til þess að gagnlegu bakteríurnar drepast á meðan aðrar sem eru harðari af sér og gera mögulega gera ógagn þrífast.“

Í Asíu, og þá alveg sérstaklega í Japan, þykja það góðir mannasiðir að fólk með kvef eða aðrar umgangspestir hafi grímu fyrir vitunum til að smita ekki aðra, og sumir hafa það fyrir sið að setja á sig grímu þegar mikið liggur við til að forðast möguleg smit. Kamilla segir að það geti mögulega dregið úr líkunum á að dreifa smiti í aðra að hafa t.d. trefil fyrir andlitinu ef ekki verður hjá því komist að vera innan um annað fólk: „Og svo verður að muna að sá sem mikið með fingurna undir grímunni er þá líklegur til að smita með höndunum í staðinn.“

Eftir því sem einkennin eru meiri, því brýnna er að fólk haldi sig heima – bæði til að veikindin versni ekki og líka til að smita síður aðra. „Lágmark er að hringja og tilkynna sig veikan þegar maður er orðinn það slappur að geta ekki gert gagn í vinnunni. En ef fólk hóstar títt og hnerrar, eða er með mikinn niðurgang, þá er vissara að vera ekkert að mæta og hætta á að smita vinnufélagana, jafnvel þó að vinnugetan sé til staðar. Svo er að muna að stunda gott almennt hreinlæti, vera ekki að koma við hluti frá öðrum og hvað þá drekka úr sömu flösku eða glasi.“

Sýni öldruðum og ungbörnum tillitssemi

Fara þarf sérstaklega varlega í kringum aldraða og ungbörn, og fólk sem t.d. vegna lyfjameðferðar eða veikinda er með veiklað ónæmiskerfi. „Ef nýtt barn er komið á heimilið er ágæt regla að kyssa ekki andlit eða hendur sem þau svo bera að andlitinu, og fólk sem er með kvef, hor eða hósta, eða hefur nýlega verið með niðurgang, ætti ekki að halda á ungbörnum eða kyssa þau,“ segir Kamilla

Umgangspestirnar bíta síður á þá sem eru hraustir fyrir, og þeir yngstu og elstu geta vænst þess að þurfa lengri tíma til að jafna sig á veikindunum. Segir Kamilla engin töfraráð til við haust- og vetrarflensunum: „Huga þarf að því að innbyrða nægan vökva því þegar við erum með hita öndum við hraðar og töpum töluverðum raka við hvern andardrátt. Mikil vanlíðan vegna veikinda getur líka dempað matarlystina, sérstaklega hjá ungum börnum og þarf að passa að sjúklingurinn drekki nægan vökva og borði ef hann hefur einhverja lyst, til að hann lendi ekki í vítahring þar sem þurrkur og orkuleysi gera líkamanum erfiðara að ná aftur fullri heilsu.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál