Samfélagsmiðlastjarnan Lexi Reed hefur leyft fólki að fylgjast með sér breyta um lífstíl á Instagram. Á dögunum birti hún myndir úr skurðaðgerð þar sem aukahúð var fjarlægð. Reed var búin að léttast um 140 kíló þegar hún fór í aðgerðina og passaði húðin hennar ekki lengur á hana ef svo má að orði komast.
Reed sem er 27 ára var hátt í 220 kíló þegar vinkona hennar skoraði á hana að hætta að borða óhollt og byrja að hreyfa sig. Aukahúðin olli henni óþægindum og verkjum og gerði henni meðal annars erfitt fyrir í ræktinni.
Reed fór í níu klukkutíma aðgerð þar sem yfir þrjú kíló af húð voru tekin af bæði magasvæðinu sem og lærum. Læknirinn hefði getað tekið meira en hann lagaði rass þannig að hann samræmdist betur nýja vaxtarlagi hennar. Hann gerði líka nýjan nafla á hana.
Hér má sjá myndir af húðinni sem Reed birti á Instagram.