Svona æfir stæltasta stjörnupar í heimi

Alex Rodriguez og Jennifer Lopez standa þétt saman.
Alex Rodriguez og Jennifer Lopez standa þétt saman. mbl.is/AFP

Söng- og leikkonan Jennifer Lopez og fyrrverand hafnaboltamaðurinn Alex Rodriguez eru eitt frægasta kærustupar í heimi og líklega það stæltasta. Parið er duglegt að hreyfa sig saman en Lopez hefur vakið sérstaka athygli fyrir að vera 49 ára og aldrei í betra formi. 

People fylgdi parinu eftir í ræktinni en parið fór í líkamsrækt sem kallast TruFusion. Um er að ræða uppáhaldshreyfingu Alex Rodriguez, hann kunni reyndar svo vel við hana að hann fjárfesti í vörumerkinu í fyrra. 

Í tímunum er allt gert í heitum sal sem fær fólk ekki aðeins til að brenna hraðar heldur til þess að hitna hraðar. Kemur þetta sér vel fyrir Rodriguez sem hefur þurft að gangast undir aðgerðir eftir erfiðan íþróttaferil. 

Æfingarnar sem parið sækir líkjast einhvers konar „bootcamp“-tímum í heitum sal. Það hljómar ekkert allt of vel en Lopez og Rodriguez eru að minnsta kosti í hörkuformi. 

Jennifer Lopez og Alex Rodriguez.
Jennifer Lopez og Alex Rodriguez. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál