Svona heldur Jessica Alba sér í formi

Jessica Alba hleypur á hlaupabretti.
Jessica Alba hleypur á hlaupabretti. AFP

Leikkonan og athafnakonan Jessica Alba eignaðist sitt þriðja barn um síðustu áramót en er komin aftur í hörkuform. Hún hefur ekki mikinn tíma til að æfa en stundum er hálftími alveg nóg eins og sést á hlaupaplani sem hún deildi með aðdáendum sínum á dögunum. 

Alba segist vera slæm í hnjánum svo hún á erfitt með að hlaupa. Hún kýs þó að eyða dýrmætum hálftíma í brennsluæfingar á hlaupabretti en það fer betur með hnén ef hún stillir á smá halla á hlaupabretti. 

Hálftíma hlaupaplan Jessicu Alba

Ein mínúta á hraða þrjú, tvær mínútur á hraða 7. Halli tvö. Endurtekið í 24 mínútur. 

30 sekúndur á hraða þrjú, ein mínúta á hraða 7,5. Halli eitt. Endurtekið í sex mínútur. 

Eftir hálftíma spretti mælir Alba með því að stilla á aðeins meiri halla, eða halla tvö og hlaupa rólega á hraða þrjú í fimm mínútur. 

Hlaupaplan Jessicu Alba.
Hlaupaplan Jessicu Alba.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál