Halle Berry fastar til klukkan tvö á daginn

Halle Berry borðar ekki fyrr en klukkan tvö á daginn.
Halle Berry borðar ekki fyrr en klukkan tvö á daginn. AFP

Leikkonan Halle Berry segist fasta til kl. 14 á daginn. Hún og einkaþjálfarinn hennar, Peter Lee Thomas, eru með heilsuspjall sem fastan lið á Instagram. Í nýlegu spjalli þeirra sagði hún að hún setjist ekki niður til þess að borða fyrr en eftir klukkan tvö á daginn. Thomas sagðist vera á 16:8 kúrnum þar sem hann fastar í 16 tíma á sólarhring og borðar í 8 tíma. 

Hin rétt rúmlega fimmtuga leikkona er í fanta formi og deilir oft myndböndum af sér í ræktinni og á æfingum með Thomasi.

Halle Berry er í fanta formi.
Halle Berry er í fanta formi. skjáskot/Instagram

Berry sagði einnig að hún væri mikil nasl-kona og vilji alltaf eiga eitthvert hollt nasl innan handar. Hún sagðist vera hrifnust af próteinstykkjum í millimál. 

Þau voru einnig spurð um pasta í spjallinu og hvort þau borði það. Berry sagðist aðallega borða kúrbítspasta og gefur krökkunum sínum kúrbítspasta í staðinn fyrir venjulegt pasta. Hún sagði þó að þegar hana vanti venjulegt pasta þá fái hún sér venjulegt pasta. „Það koma tímar þar sem maður þarf bara að fá sér smá pasta. Gerðu það bara, ég geri það,“ sagði Berry. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál