Lýsir ströngu mataræði fyrir sýninguna

Sabah Koj birti þessa mynd af sér frá tískusýningu Victoria's …
Sabah Koj birti þessa mynd af sér frá tískusýningu Victoria's Secret á Instagram. skjáskot/Instagram

Fyrirsætan Sabah Koj gekk í fyrsta sinn tískupallinn fyrir Victoria's Secret fyrr í mánuðnum. Koj sem er tvítug greindi frá afar ströngu mataræði í viðtali við Daily Mail í Ástralíu en Koj sem er frá Suður-Súdan flutti til Ástralíu sjö ára.

Ekki kemur fram hversu lengi hún var á stranga mataræðinu en grænmeti og ávextir voru uppistaðan og snerti hún ekki á kolvetnum og mjólkurvörum. 

Í morgunmat borðaði hún tvo ávexti. Í hádeginu borðaði hún salat og á kvöldin steikt eða soðið grænmeti til hliðar við máltíðina. Hún passaði síðan að drekka mjög mikið vatn. 

Koj sem má líklega að einhverju leyti þakka móður sinni og föður fyrir hávaxinn og grannan líkama greindi frá því að ásamt ströngu mataræði hafi hún farið í ræktina þrisvar til fjórum sinnum í viku. Í ræktinni lagði hún sérstaka áherslu á magann. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál