Þjálfari Gomez æfir hendur á einfaldan hátt

Selena Gomez.
Selena Gomez. AFP

Stjörnuþjálfarinn Amy Rosoff Davis þjálfar stjörnur á borð við Selenu Gomez og Kristin Bell. Þegar blaðamaður Instyle spurði Davis hvernig væri best að þjálfa handleggi var svar hennar handadans. 

Hægt er að gera æfingarnar heima og án tækja. Blaðamaðurinn prófaði dansinn og fann hún næstum því strax fyrir bruna í handleggjunum.

„Ég bæti handadansi við næstum því allar æfingar kúnna minna, venjulega um miðja æfingu eða í lok æfingar,“ sagði Davis sem sér miklar framfarir hjá kúnnum sínum sem gera handadansinn á hverri æfingu. Mælir hún með því að fólk byrji á að dansa með höndunum við eitt lag. Markmiðið er svo að geta gert dansinn í tvö lög. 

Lykillinn að því að finna bruna er að virkja alla vöðva í handleggjunum með því að teygja sig frá baki fram í fingur. „Handadans er mjög góð leið til að styrkja hendur þínar án þess að gera þær of vöðvastæltar,“ sagði stjörnuþjálfarinn. 

Hvað er handadans?

Á myndbandi sem Davis birti á Instagram má sjá hana gera venjulegar æfingar eins og framstig og sprellikallahopp en bæta við höndum sem minna á handahreyfingar ballettdansara, sem sagt handadans. 

Kristen Bell.
Kristen Bell. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál