Heilsuráð Bellu Hadid

Fyrirsætan Bella Hadid er í frábæru formi og setur mikinn …
Fyrirsætan Bella Hadid er í frábæru formi og setur mikinn metnað í að rækta líkama sinn og sál. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Fyrirsætan Bella Hadid er þekkt fyrir undurfagran líkama, en það sem fáir vita er að hún er einnig gædd stórkostlegum kostum á andlega sviðinu. Eftirfarandi eru heilsuráð í hennar anda.

Gerðu góðverk

Bella Hadid veit að það að vera tiltækur fyrir aðra gefur lífinu tilgang. Fyrir síðasta þakkargjörðardag tók hún þátt í að útbúa fimm hundruð máltíðir fyrir heimilislausa með kristilegu samtökunum Bowery Mission.

Bella Hadid ásamt félögum að undirbúa máltíðir fyrir heimilislausa í …
Bella Hadid ásamt félögum að undirbúa máltíðir fyrir heimilislausa í kringum síðustu þakkargjörðarhátíð. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Gerðu það sem þér finnst skemmtilegt

Hadid hleypur í 20 mínútur, síðan æfir hún box og lyftir lóðum. Hún er öguð í æfingum og vinnur með einkaþjálfara. Hún er mikið fyrir íþróttir og hefur m.a. verið dugleg á hestbaki síðan hún var ung stúlka.

Bella Hadid hefur gaman af því að æfa líkama sinn …
Bella Hadid hefur gaman af því að æfa líkama sinn og gerir það sem henni finnst skemmtilegt hverju sinni. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Borðaðu til að byggja upp vöðvana

Hadid borðar 30 mínútum fyrir hverja æfingu og síðan er hún dugleg að borða prótín eftir æfingu. Hún borðar hollan, einfaldan og góðan mat.

Bella Hadid borðar mikið af próteini til að byggja upp …
Bella Hadid borðar mikið af próteini til að byggja upp vöðvana og gerir góðar teygjuæfingar. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Myndaðu djúp tengsl

Hadid er náin bæði fjölskyldu sinni og vinum. Hún myndar djúp tilfinningatengsl við alla sem hún umgengst. Hún er dugleg að hitta fólk og samskipti hennar við aðra byggjast á trausti og trúnaði.

Skipulag sem hentar þér

Bella Hadid er alin upp við þá hugsun að allir geti orðið það sem þá langar til ef þeir leggja nóg á sig. Hún vinnur skipulega, æfir skipulega og gerir allt sem hún tekur sér fyrir hendur með vakandi hugsun.

Það sem hún hefur áhuga á, þar er einbeiting hennar hverju sinni.

Bestu ráðin

Bella Hadid segir að besta ráð sem hún hafi fengið sé að fara í göngutúr og teygja vel fyrir og eftir. Til að fá fallegan langan líkama er mikilvægt að hafa vöðvana vel teygða og afslappaða.

Bella Hadid er ein af vinsælustu fyrirsætum í heiminum um …
Bella Hadid er ein af vinsælustu fyrirsætum í heiminum um þessar mundir. Ljósmynd/skjáskot Instagram
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál