Ellý og kærastinn með vellíðunarkvöld

Ellý Ármannsdóttir les í tarot-spil.
Ellý Ármannsdóttir les í tarot-spil. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ellý Ármannsdóttir og Hlynur Jakobsson ætla að vera með sérstakt vellíðunarkvöld 25. janúar í Hannesarholti þar sem hún les í tarot, fer með möntru og hann leikur frumsamin lög. 

„Viltu byrja betra líf á bóndadaginn með Ellý Ármanns og Hlyni Sölva? Skipta út þungum þorramat fyrir léttan og heilnæman vegan kvöldverð? Ellý og Hlynur munu fylla veitingasali Hannesarholts af ljúfum hugleiðslutónum og möntrum föstudagskvöldið 25. janúar. Innifalið í verði er matur, tveggja rétta vegan matseðill og örspá með Ellý. Hlynur leikur hugleiðslutónlist og Ellý gengur á milli borða og spáir fyrir hverjum og einum í einrúmi,“ segir í umfjöllun um viðburðinn. 

Ellý hefur spáð í tarotspil frá unga aldri og er öflug spákona, með sjötta skilningarvitið opið og sér gjarnan lengra en flestir þegar hún les í tarotspilin sín. Hún spáir fyrir matargestum og kannar hvað árið 2019 færir þeim.

Hlynur Sölvi hefur undanfarin ár samið hugleiðslutóna og gefið út þrjár plötur. Tónlist Hlyns innheldur meðal annars hljóð úr íslenskri náttúru, dagdraumum og hversdagsleika hvers manns.

Hlynur mun flytja lög af plötum sínum sem finna má á Spotify.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál