J-Lo ætlar ekki að borða sykur í tíu daga

Jennifer Lopez ætlar ekki að borða sykur og kolvetni í …
Jennifer Lopez ætlar ekki að borða sykur og kolvetni í 10 daga. AFP

Tónlistarkonan Jennifer Lopez eða J-Lo og kærastinn hennar Alex Rodriguez eru að taka 10 daga áskorun þar sem þau sleppa öllum sykri og öllum kolvetnum úr mataræðinu. 

Þau hafa sýnt frá átakinu á Instgram-síðum sínum upp á síðkastið en þau byrjuðu áskorunina 20. janúar. Þau skoruðu á nokkra vini sína að gera þetta líka og hvöttu fólk til að merkja vini sína í athugasemdum og skora á þá að sleppa sykri og kolvetnum í 10 daga. 

Parið lifir nokkuð heilbrigðum lífstíl og eru bæði í fanta formi. Þau eru dugleg í ræktinni og sýndu nýverið frá ferð sinni í ræktina. 

Áskorunin hefur verið þeim nokkuð erfið en J-Lo birti mynd í gær þar sem hún sagði að henni liði aðeins betur, á fjórða degi.

J-Lo og Alex eru samstiga.
J-Lo og Alex eru samstiga. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál