Svona æfir hin fimmtuga Aniston

Jennifer Aniston er nýorðin fimmtug en æfir af kappi.
Jennifer Aniston er nýorðin fimmtug en æfir af kappi. AFP

Jennifer Aniston varð fimmtug 11. febrúar. Leikkonan er í fantaformi en þjálfari hennar, Leyon Azubuike, lýsti æfingum hennar í tilefni stórafmælisins í viðtali við Women's Health. Aniston æfir allt frá því þrisvar í viku í 45 mínútur upp í sjö daga vikunnar í einn og hálfan tíma í senn. 

Azubuike segir það erfiða við starf sitt að finna nýjar og krefjandi æfingar fyrir stjörnuna. „Hér er kona sem hefur alltaf litið frábærlega út og ég fæ það hlutverk að halda henni þannig og gera enn betur,“ segir þjálfarinn um kúnna sinn. 

„Við boxum, við sippum, við gerum styrktaræfingar, við vinnum mikið með teygjur,“ segir þjálfarinn en hann breytir reglulega til svo æfingarnar koma líkama Aniston sífellt á óvart. 

Þjálfarinn segir Aniston elska að boxa og styrkja miðjuna og segir hana fara létt með hvaða æfingu sem er sem reynir á miðjuna. „Hún heldur tveggja eða þriggja mínútna planka frekar auðveldlega.“

Til þess að gera plankaæfingarnar erfiðari lætur Azubuike Aniston gera erfiðari útfærslur af venjulegum planka eins og hliðarplanka og planka þar sem hún lyftir höndum af gólfi. Aniston lyftir einnig hnjám upp að brjósti hangandi á stöng til þess að þjálfa magavöðvana. Liggur á bakinu og lyftir líkamanum í V-laga form og rúllar sér fram á litlu hjóli þannig að reynir á magavöðvana.

Þjálfarinn segir hana gera afar litið af uppsetum, klassískri magaæfingu sem flestir kannast við.  

Jennifer Aniston er dugleg að mæta í ræktina.
Jennifer Aniston er dugleg að mæta í ræktina. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál