„Ég lenti á botninum með sjálfa mig“

Hera Björk Þórhallsdóttir.
Hera Björk Þórhallsdóttir.

Söngkonan Hera Björk er allt önnur kona eftir að hún fór í sjálfsskoðun. En hvers vegna lítur hún svona vel út? Hún svaraði þeim spurningum í viðtali við K100 í þættinum Ísland vaknar. 

Hera Björk lenti á spítala í vikunni vegna gallsteinakasts.

„Þetta eru glimmersteinar,“ segir hún og hlær og bætir við:

„Ég þurfti „time out“ inni á þessari dásamlegu stofnun. Fékk umhyggju og ást,“ segir hún og hrósar starfsfólki Landspítalans. 

Fyrir um það bil tveimur árum tók Hera Björk heilsuna föstum tökum. 

„Ég lenti á botninum með sjálfa mig andlega og líkamlega. Hingað og ekki lengra. Ætlar þú að halda þessu áfram? Allir draumarnir þínir og markmiðin, þú ert ekki að fara að ná þeim með þessu framhaldi. Ég hífði mig upp og fór til fólks sem hjálpaði mér. Ég er búin að vinna með sálfræðingi, sjúkraþjálfara, búin að taka á heilsunni og mataræðinu. Ég tók samtalið við sjálfa mig og ég er búin að læra að elska sjálfa mig. Þetta er stóra ástin í lífi mínu,“ segir hún. 

Hera Björk segir að hún hafi litið mikið inn á við, þess vegna líti hún svona vel út. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér fyrir neðan:  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál