Það hjálpar sumum að vigta sig og telja kaloríur. Þessir tveir hlutir eru þó eitthvað sem Óskarsverðlaunaleikkonan Halle Berry gerir aldrei. Berry er dugleg að greina frá því á Instagram hvernig hún hugsar um heilsuna.
Berry svaraði spurningum ásamt þjálfara sínum á Instagram og voru þau meðal annars spurð út í kaloríuinntöku. Sagðist Berry ekki telja kaloríur, hún reynir frekar að fylgja ketómataræðinu og borða hollt. Hún hefur hins vegar greinilega prófað að telja kaloríur og vigta sig en segir það hafa farið í vitleysu. Það virkar ekki fyrir hana að telja kaloríur. Það sama á við um kílóin, þau skipti ekki máli svo lengi sem henni líði vel.
Leikkonan mælir þó með að fólk kynni sér grunnatriði í næringarfræði. Hversu mikið það ætti að borða, hvernig máltíðir ættu að líta út. Festa það í minninu og reyna að borða þannig á hverjum degi.
Til þess að forðast að detta í nammiskápinn þegar þannig liggur á segir Berry einu lausnina vera þá að kaupa ekki snakk og annað þess háttar.