Þjálfarinn Marie Wold í Bandaríkjunum er dugleg að segja frá því á Instagram að hún var ekki hraustari þegar hún var með skorna magavöðva. Fólk talar gjarnan um að fá skorna magavöðva eða „six-pack“ en Wold hvetur fólk ekki til að eltast við slík markmið.
Hún segist hafa eytt fimm til sex árum í að reyna að líta út fyrir að vera með „fullkominn“ líkama í von um að sjálfstraust myndi fylgja með í kaupbæti. Wold segir hins vegar sjálfstraustið ekki koma með megrun og með því að reyna að laga sig heldur með sjálfsást.
Þegar Wold hugsar til baka viðurkennir hún að fyrir nokkrum árum hefði hún sjálf verið vonsvikin að komast að því að hún hefði aldrei náð markmiði sínu að verða 55 kíló. Einnig hefðu það verið henni vonbrigði árið 2014 að komast að því að hún yrði ekki sjálfkrafa svöl með skorna magavöðva heldur aðallega svöng.
Hún er ekki á móti því að fólk hreyfi sig og borði hollt en segir að hugurinn verði að vera á réttum stað og hamingjan byrjar að innan.