Þjálfari Kim fer yfir hvað skal varast

Kim Kardashian West er dugleg að æfa.
Kim Kardashian West er dugleg að æfa. mbl.is/AFP

Melissa Alcantara er einn frægast einkaþjálfari í heimi í dag enda þjálfar hún enga aðra en Kim Kardashian. Hún veit eitt og annað um hvernig skal æfa upphandleggsvöðva en sjálf er hún með stóra og sterka handleggi. 

Í nýju myndbandi á Instagram fer hún yfir hvernig skal þjálfa tvíhöfða með stöng með lóðum. Æfingin lítur ekki út fyrir að vera flókin en það þarf þó ýmislegt að varast að sögn Alcantara sem sér mjög marga gera æfinguna vitlaust.

Segir hún mikilvægt að fólk sé með axlirnar aftur og missi þær ekki fram heldur haldi bringunni uppi. Þá sé mikilvægt að beygja sig í fótum og þrýsta fingrum að stönginni til þess að halda líkamanum alveg stífum. 

Að lokum mælir hún með því að fólk fái sér léttari lóð og geri æfinguna rétt í stað þess að sveifla lóðunum upp. 

Kim Kardashian West æfir undir leiðsögn Melissu Alcantara.
Kim Kardashian West æfir undir leiðsögn Melissu Alcantara. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál