Kate Hudson gaf það út rétt fyrir áramót að hún ætlaði að léttast um rúm tíu kíló fyrir vorið en hún eignaðist sitt þriðja barn í október. Nú myndu einhverjir segja að vorið væri komið og eitt er víst að Hudson er byrjuð að gera armbeygjur fyrir lengra komna.
Hudson deildi armbeygjuæfingunni á dögunum á Instagram sem hún gerði undir leiðsögn þjálfara síns, Nicole Winhoffer. Fer Hudson í jógastöðuna hund sem horfir niður á milli armbeyja og teygir annan fótinn upp í loft. Þegar hún tekur svo þrönga armbeygjuna fer fóturinn 90 gráður til hliðar.
Sjón er sögu ríkari en hér fyrir neðan má sjá Hudson gera æfinguna sem þjálfari hennar kallar nöðruna.