Pastað á Ítalíu fór illa með rassinn

Gwyneth Paltrow missti sig í pastanu á Ítalíu.
Gwyneth Paltrow missti sig í pastanu á Ítalíu. mbl.is/AFP

Allir vegir liggja til Ítalíu en það er fátt betra en að borða pasta á Ítalíu í sumarfríinu. Leikkonan og heilsugúrúið Gwyneth Paltrow er þekkt fyrir að borða hollt og hugsa vel um heilsuna. Hún segir þó farir sínar ekki sléttar af pastaátinu en hún nefndi það á dögunum að afturendi sinn hefði litið betur út. 

Paltrow lofsamaði æfingar stjörnuþjálfarans Tracy Anderson á Goop-ráðstefnu í Bretlandi á dögunum að því fram kemur á vef The Sun. „Hver á þennan rass?“ Hugsaði Paltrow þegar hún gekk nakin fram hjá spegli eftir að hafa æft hjá Anderson í nokkra mánuði. Stuttu seinna áttaði hún sig á því að þetta var hennar eigin rass sem leit svona vel út þökk sé Anderson. 

„En rassinn á mér er ekki frábær akkúrat núna. Ég var bara á Ítalíu og missti mig gjörsamlega í pastanu,“ bætti Paltrow við. 

Gwyneth Paltrow.
Gwyneth Paltrow. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál