Gyða Dís er í betra formi 54 ára en tvítug

Gyða Dís Þórarinsdóttir er 90% á hráfæði.
Gyða Dís Þórarinsdóttir er 90% á hráfæði. Ljósmynd/Ásta Kristjánsdóttir

Gyða Dís Þórarinsdóttir, jógakennari í Shree Yoga, breytti algerlega um stefnu fyrir 16 árum eftir að hafa lifað á súkkulaði og gosi til að komast í gegnum erfið tímabil. Síðasta áratuginn hefur hún svo gengið skrefinu lengra með því að vera 90% á hráfæði. Eftir að hafa stundað langhlaup í mörg ár kom jóga inn í líf hennar og gerði það betra. 

Þrátt fyrir almennt heilbrigt líferni er það engin tilviljun að ég umbreytti lífsháttum mínum fyrir sextán árum. Ég á þrjá syni ásamt eiginmanni mínum, drengi sem nú eru orðnir fullorðnir menn, en einn þeirra er með alvarlegan hrörnunarsjúkdóm. Andlega er hann alveg heill, mjög greindur, hefur lokið háskólanámi og rekur framsækið fyrirtæki ásamt tveimur öðrum. En hann þarf aðstoð við allar athafnir daglegs lífs. Á yngri árum varð hann oft lífshættulega veikur og ég var löngum stundum hjá honum á spítalanum. Á þessum tíma var nóg að hann fengi kvefpest og það gat haft mjög alvarlegar afleiðingar. Ég hélt mér gangandi á gosi og súkkulaði, gat lítið sofið og það tók mikinn toll af mér. Ég fann að ég hugsaði ekki nógu vel um sjálfa mig og ákvað að taka málin í mínar hendur svo ég gæti hugsað betur um son minn,“ segir Gyða Dís.

Er á 90% hráfæði

Eitt af því fyrsta sem hún gerði var að taka til í mataræði sínu og borðar í dag 90% hráfæði. Það hefur hún gert frá árinu 2009 eða í áratug.

„Ég er enn á lífi og líður vel, en sumir telja að hráfæði geti varla verið hollt til lengdar. Sér í lagi hérlendis yfir dimmustu og köldustu mánuðina. Það er mismunandi hvernig mataræði hentar hverjum og einum. Við erum öll ólík, en hráfæði hentar mér mjög vel. Þegar mér er boðið í veislu tek ég með mér nesti og fæ oft spurningar frá forvitnu fólki,“ segir hún og hlær og heldur áfram:

„Fólk vill fá að vita hvað ég er með, vill fá að smakka, og þegar ég varð vör við hversu mörgum fannst það ógurlega gott sem ég var að borða fór ég að halda námskeið þar sem ég kenni fólki að útbúa hráfæði. Þetta er sannarlega gómsætur matur sem ég borða og það kemur mörgum á óvart að ég er algjör súkkulaðigrís. Ég geri súkkulaðið sjálf og hef líka haldið mjög vinsæl námskeið í súkkulaðigerð,“ segir hún og bendir á bloggsíðu sína, shreeyoga.is. Það er uppskrift að hrákökunni sem hún var með á fimmtugsafmælinu sínu og allir hafi verið mjög hrifnir af.

Ljósmynd/Ásta Kristjánsdóttir

Á betri stað nú en áður

Gyða Dís segist vera í miklu betra formi núna 54 ára en þegar hún var tvítug. Bæði andlega og líkamlega.

„Yngsti sonur minn segir oft „hvað er að frétta, mamma þú, ert eins og Benjamin Button.“ Ég yngist með árunum, segir hún og brosir.

– Hvernig er mataræðið?

„Ég er svona 90% á hráfæði og borða einungis gufusoðið grænmeti og ayurvedískan pottrétt sem samanstendur af mung baunum, kinóa og kryddjurtum sem gerir mér gott. Svona matur er góður fyrir meltingarkerfið og sérstaklega yfir vetrartímann. Fólk er auðvitað mjög mismunandi en meltingin skiptir mig máli og ég huga vel að þarmaflórunni. Síðustu ár hef til dæmis borðað meira af súrkáli sem ég geri sjálf eða kaupi tilbúið. Auk þess tek ég daglega inn góðgerla og svo hætti ég að drekka kaffi árið 2004. Fyrir mig er mjög auðvelt að hætta einhverjum rútínum. En þá var ég greind með svokallað Raynards syndrome og þurfti að forðast þrennt: Kulda, álag eða streitu og kaffi. Í mínu tilfelli var auðveldast að losa sig við kaffið og það gekk bara eins og í sögu. En núna síðasta ár hef ég bætt því aftur inn finnst gott að gera mér ákveðinn kaffidrykk með ýmiskonar super stöffi, en stundum nota ég kaffi eða sleppi því og geri kakódrykk með þessu stöffi í staðinn.

Langhlauparinn sem varð jógi

Gyða Dís hefur alltaf haft mikla hreyfiþörf. Hún var langhlaupari áður en jógað kom inn í líf hennar og breytti öllu.

„Það má segja að ég hafi hætt að hlaupa á toppnum þegar ég kláraði fallegasta og skemmtilegasta hlaup lífs míns, Laugavegshlaupið, sem var 54 km. Á þessum tíma var ég byrjuð að iðka jóga undir handleiðslu meistara míns, Kristbjargar Kristmannsdóttur jógakennara. Ég var búin að læra öndun, hugleiðslu, jógasöguna og að iðka Yamas og Niyamas. Árið 2009 hætti ég alveg að hlaupa og kynntist Hot jóga sem kom mér skemmtilega á óvart,“ segir Gyða Dís.

Hún segir að það hafi verið magnað að upplifa það að hægt sé að keyra púlsinn upp með því einu að anda.

„Ég bara fann mig algerlega í krefjandi jógastöðum, fann einhvern veginn hvað jóga átti brjálæðislega vel við líkama minn. Svo fór ég aðeins lengra og rannsakaði hvað eða hvernig ég gæti öðlast betri reynslu, hvar ætti ég að gera það hérlendis eða erlendis. Ég fór að sjálfsögðu til Kristbjargar í 200 tíma jógakennaranám en mér finnst það í raun vera grunnurinn að öllu jóga hjá mér því það er gott að fara í íslenskan jógakennaraskóla. Það er öðruvísi en að læra erlends sem ég gerði einnig. Í framhaldi af rannsókn minni fór ég alveg á bólakaf í jógakennaranám en hugsaði það í upphafi aðeins fyrir mig sjálfa til að auðga líf mitt, læra tæknina í öndun og hugleiðslu, læra að tækla mig á erfiðum stundum og kannski líka fyrir fjölskyldu mína.“

Ljósmynd/Ásta Kristjánsdóttir

Gyða Dís segir að við lendum öll í mótlæti í lífinu og segir að það sé okkar ákvörðun hvernig við tökumst á við það.

„Ég hef alls ekki sloppið við mótlæti og það hefur þroskað mig og gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag. Árið 2015 seldum við fyrirtækið okkar og þá stökk ég út í djúpu laugina og byrjaði að vinna sem jógakennari og Thai yoga nuddari í fullu starfi.“

Í janúar 2016 hélt Gyða Dís til Taílands þar sem hún náði sér í 200 stunda kennararéttindi í Anusara jóga sem hún kennir mikið í dag.

„Anusara jóga er jóga hjartans, að sjá allt það fallega í öllu sem er, sjá það að hver og einn leggur allt sitt í að ástunda og gera það 100% miðað við sína eigin getu og líkamsburð. Við erum svo misjöfn, hver og einn er einstakur eða einstök og við verðum að bera virðingu fyrir því, bera virðingu fyrir líkama okkar og læra að elska hann nákvæmlega eins og hann er.“

Í haust er Gyða Dís að byrja með jógakennaranámskeið.

„Ástríðan mín er að kenna jóga, leiða jógatíma, leiða fólk áfram inn í mismunandi stöður og jóga snýst ekki endilega um að fara í alla vega vindur og fettur og krefjandi jógastöður, alls ekki. Það snýst um umbreytinguna í raun og veru. Hver viltu vera? Aðalástæðan fyrir þessu er að það er svo gaman að sjá fólkið sitt vaxa og dafna, fylgjast með ferðalaginu þeirra þegar þau takast á við sinn innri mann. Í kennaranáminu förum við enn dýpra að sjálfsögðu. Ég hef undanfarin ár boðið upp á ýmiskonar jógaferðir hérlendis og erlendis. Þar er gríðarlega mikil viska og lærdómur sem jógarnir öðlast, finna sig og bera þessar ferðir oft saman við hinar ýmsu starfsmannaferðir sem eru í sama tilgangi, að bæta líf sitt og þekkingu í því sem starfað er við. Í framtíðinni sé ég fyrir mér einmitt að bjóða upp á starfsmannaferðir einnig. En jógakennaranámið á hug minn allan eins og er og það hefst 27. september með vikudvöl á dásamlegu hóteli í Bjarnarfirði. Þar er allt til alls, hreinn vegan grænmetismatur, dásamleg náttúrusundlaug, flot því ég er einnig með flotþerapíu, já það er hægt að telja þetta endalaust upp. Í raun er hægt að lýsa náminu með þessum orðum.

Hvað drífur þig áfram?

„Ástríðan, fyrir öllu því sem ég er að gera. Fólk spyr mig hvernig nennir þú þessu, vakna alla morgna og fara að kenna? En jú, ástríðan flytur fjöll ásamt kærleikanum. Ég geri mitt besta og elska það að fá fólk með ýmiskonar vandamál og sjá það fá bata, styrkjast og verða heilbrigðara. Vegna þess að líkamar okkar eru gerðir til að hreyfa sig, ég er líka mikil anatomy- eða líffæranörd, það skiptir mig miklu meira máli að þú farir rétt í og úr jógastöðunni / asana heldur en hvernig þú lítur út í henni. Við erum ekki að stunda jóga til þess aðeins að fara í fallega jógastöðu. Jóga er svo miklu miklu miklu meira en það.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál