Tæp 35 kíló farin á nokkrum mánuðum

Leikarinn Stephen Fry hefur grennst frá því að þessi mynd …
Leikarinn Stephen Fry hefur grennst frá því að þessi mynd var tekin fyrir tveimur árum. mbl.is/AFP

Breski leikarinn og spéfuglinn Stephen Fry hefur grennst töluvert að undanförnu en hann viðurkenndi í morgunþætti á BBC á dögunum að því fram kemur á vef The Sun að tæp 35 kíló eru farin. Hinn 61 árs gamli leikari var kátur að vanda í viðtalinu og sagði að hann hefði verið rúmlega 133 kíló í apríl.

Fry greindist með krabbamein í blöðruhálsi í lok árs árið 2017. Hann fór í aðgerð í kjölfarið auk þess sem hann hefur hugað vel að heilsunni að öðru leyti að undanförnu. 

Fry tók upp á því að hreyfa sig og gengur nú mikið og hlustar til dæmis á hljóðbækur og hlaðvarpsþætti á meðan. Hann þakkar einnig hreyfingunni betri andlegri heilsu en tekur þó fram að það sé ekki nóg fyrir alla að fara bara út að ganga þegar kemur að andlegri heilsu.

Fry gerði þó meira en að fara út ganga þar sem hann segist einnig hafa borðað skynsamlega. Ekki kemur þó fram hvað felst í því að borða skynsamlega en eitt er víst að það virkaði vel fyrir Fry. 

Breski leikarinn Stephen Fry.
Breski leikarinn Stephen Fry. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál