Anna Eiríks kennir æfingar Jennifer Lopez

Anna Eiríksdóttir hóptímaþjálfari í Hreyfingu er að byrja með splunkunýtt …
Anna Eiríksdóttir hóptímaþjálfari í Hreyfingu er að byrja með splunkunýtt námskeið.

Anna Eiríksdóttir, deildarstjóri í Hreyfingu, kennir á splunkunýju námskeiði í haust sem byggt er á æfingakerfi Jennifer Lopez. Um er að ræða æfingar í heitum sal og getur fólk valið þrjú erfiðleikastig. 

„Þetta er það allra heitasta í dag. Ég fór til Las Vegas í vor að kynna mér þessa tíma eftir að hafa séð myndband með Jennifer Lopez og Arod sem sögðu að þetta væri besta æfingaprógramm sem þau hefðu kynnst. Þau voru svo hrifin að Arod fjárfesti í æfingakeðjunni sem er búin að opna margar stöðvar í Las Vegas, Flórída, víðar í Kaliforníu og er að opna fljótlega í New York og víðar. Tímarnir eru kenndir í infra-heitum sal sem hefur frábær áhrif á líkamann. Hann mýkir skrokkinn, liðkar og endurnærir og fólk er berfætt á sinni dýnu. Við munum bjóða upp á þrjú mismunandi námskeið með ólíku erfiðleikastigi en þetta er í rauninni sambland af hot yoga, bootcamp og styrktarþjálfun með ketilbjöllum og lóðum. Þetta er einfaldlega mesta snilld sem ég persónulega hef prófað í langan tíma,“ segir Anna.

Hvernig eru tímarnir byggðir upp?

„Infra power-tímarnir hefjast á jógaflæði, hreyfiteygjum og léttum styrktaræfingum með eigin líkamsþyngd til þess að undirbúa líkamann fyrir átökin. Við taka svo kröftugar lotur með styrktaræfingum með ketilbjöllum, kjarnaþjálfun og stuttum þol-lotum. Hver og einn vinnur á sínum hraða og stjórnar sínu álagi allan tímann. Tónlistin og stemningin er geggjuð. Fólk klárar sig alveg en endurnærist um leið,“ segir hún.

Anna segir að iðkandinn fái í raun allan pakkann í þessum tíma því um sé að ræða styrktarþjálfun, aukna hreyfigetu, liðleika, þol, brennslu og aukinn eftirbruna sem kalli á toppárangur eins og hún orðar það.

„Ég elska æfingakerfi sem eru fjölbreytt, skemmtileg og árangursrík. Það eru allir tímabundnir og því snilld að geta mætt í 50 mínútna tíma og upplifað eins og maður sé búin að haka í öll boxin og endurnæra líkamann. Mér finnst geggjað að vinna í heitum sal, það hefur svo góð áhrif á líkamann, ég get ekki beðið eftir keyra þetta í infra-hitanum í Hreyfingu í haust.“

Þegar Anna er spurð fyrir hvern þessir tímar séu segir hún að þeir séu fyrir alla sem vilja komast í form lífs síns.

„Infra power er fyrir konur og karla sem eru óhrædd við að taka vel á og vilja komast í toppform, tímarnir eru krefjandi en hver og einn stjórnar sínu álagi. Infra shape er fyrir konur og karla, byrjendur sem lengra komna, sem vilja einblína á styrktar- og liðleikaæfingar o.fl, það er aðeins mildara en infra power. Infra barre er fyrir konur sem vilja hið geysivinsæla barre-æfingakerfi í infraheitum sal. Það klikkar ekki.“

Anna hefur kennt leikfimi í tvo áratugi og veit manna best hvernig líkamsrækt fólks breytist.

„Líkamsræktin fer vissulega í ákveðna hringi en mér finnst þróunin vera sú að fólk vill stytta æfingarnar og nýta tíma sinn í ræktinni í botn. Lyftingar, HIIT-þjálfun (high intensity interval training), hot yoga, barre, hreyfiþjálfun (mobility) og fleira er mjög vinsælt í dag og margir tímar og æfingakerfi farin að samtvinna þessa þætti til að ná hámarksárangri eins og infra power sem er að hefjast hjá okkur í Hreyfingu 2. september,“ segir hún.

Hvernig er best að borða á svona námskeiðum?

„Við erum alltaf boðin og búin að ráðleggja fólki varðandi mataræðið en það er ekki lögð sérstök áhersla á það á þessum námskeiðum. Fólk fær samt aðgang að miklum fróðleik og góðum uppskriftum sem það getur nýtt sér. Við erum með önnur námskeið þar sem meiri áhersla er lögð á mataræðið ef fólk vantar meiri aðstoð þar.“

Íslenska þjóðin er oft ginnkeypt fyrir skyndilausnum í mataræði. Einn daginn er sykur verkfæri djöfulsins og hinn daginn eigum við að dæla í okkur fitu með ketó-mataræði. Er eitthvað af þessu sem þér finnst virka best?

„Hjá mér eru engin boð og bönn og allir „kúrar“ skammtímalausn að mínu mati. Ég er alls ekki hrifin af því. Ég trúi á fjölbreytni í mataræði, borða almennt hollt og gæta að skammtastærðunum. Það hefur alla tíð virkað best fyrir mig. Hver og einn þarf að finna hvað virkar best fyrir sig en hinn gullni meðalvegur er oftast bestur til lengdar.“

Hvað borðar þú á venjulegum degi?

„Hefðbundinn dagur hjá mér hefst yfirleitt á hafragraut með berjum eða rúsínum. Svo fæ ég mér eitthvert létt millimál um klukkan 10.30, banana, egg, epli eða eitthvað í þeim dúr, því ég kenni alltaf hóptíma í hádeginu og mér finnst óþægilegt að borða of mikið rétt fyrir tímann en samt nauðsynlegt að fá smá orku. Í hádeginu er misjafnt hvað ég fæ mér en gott salat eða góður þeytingur í skál með granóla og berjum er oft á boðstólum. Þegar ég kem heim úr vinnunni fæ ég mér stundum ristað brauð með lárperu eða sker niður ávexti fyrir okkur krakkana eða við skellum í góðan þeyting. Ég viðurkenni að stundum læðist ég í smá súkkulaði á þessum tímapunkti en ég reyni að fá mér bara smá. Kvöldmaturinn er mjög fjölbreyttur hjá okkur en við borðum hefðbundinn heimilismat sem við reynum að hafa í hollari kantinum með fullt af grænmeti. Ég fæ mér yfirleitt eitthvert smá kvöldsnarl, sérstaklega dagana sem ég kenni tvo eða þrjá tíma, sem er nánast alla daga.“

Hefurðu prófað að fasta?

„Nei, í rauninni ekki, eina sem ég hef prófað er að borða ekkert í svona 14 tíma eða frá svona 21.00-11.00, mér finnst það alveg fínt af og til en það virkar ekki fyrir mig alla daga. Ég veit um marga sem fasta alveg upp í 17 tíma og finnst það virka frábærlega fyrir sig. Ég hef aldrei prófað að fasta í nokkra daga og það er ekki á döfinni hjá mér.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál