Elur upp knattspyrnustjörnur í fremstu röð

Ragnhildur Sveinsdóttir er fótboltamamma sem kennir börnum sínum að gefast ekki upp. Hún er búsett í Madríd þar sem synir hennar æfa með spænska stórveldinu Real Madrid. Elsti sonur hennar, Sveinn Aron Guðjohnsen, er atvinnumaður í knattspyrnu á Ítalíu. Hún segir heiminn sem börnin alast upp í harðan en hún hafi trú á að rétt hugarfar komi fólki alla leið. 

Ragnhildur Sveinsdóttir er búsett í Madríd á Spáni um þessar mundir þar sem hún býr með börnum sínum þremur; þeim Andra Lucasi, Daníel Tristan og Thalíu. Andri og Daníel spila fyrir spænska stórveldið Real Madrid. Sveinn Aron Guðjohnsen, elsti sonur hennar, er hins vegar orðinn 21 árs og starfar sem atvinnumaður í knattspyrnu með AC Specia á Ítalíu.

Ragnhildur var ung að árum þegar hún flutti frá Íslandi með fyrrverandi eiginmanni sínum, Eiði Smára Guðjohnsen. Hún er uppalin í Kópavogi og á að eigin sögn dásamlega fjölskyldu sem stendur saman.

„Ég var 21 árs að aldri og ófrísk að fyrsta barninu mínu þegar við fluttum til Hollands á sínum tíma. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á fótbolta enda var ég sjálf í fótbolta á mínum yngri árum.“

Ragnhildur hefur undanfarin ár verið að fóta sig ein í útlöndum með börnin eftir að hún skildi. Hún segir það reyna á en hún viti að ekkert næri sig betur en að vera með börnum sínum að láta þeirra drauma rætast.

„Ég hef alltaf verið mikill nærandi í mér. Ég hef alltaf verið til staðar fyrir fjölskylduna mína og annað fólk. Það finnst mér rosalega gaman. Ætli það sé ekki í eðli mínu að vilja sjá öðrum ganga vel og ef ég get aðstoðað við það þá er ég glöð.“

Finnst skemmtilegast að dansa

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?

„Mér finnst skemmtilegast að dansa. Útivist og heyfing heillar mig líka, en tónlist og dans eru í uppáhaldi hjá mér. Það skiptir mig miklu máli að hafa gaman af lífinu. Það er mikið um salsaklúbba þar sem ég bý erlendis og ég veit fátt skemmtilegra en að fara á þá og dansa. Það eru allir glaðir og brosandi þegar þeir dansa og það segir svo mikið um þessa listgrein,“ segir Ragnhildur og bætir við: „Síðan er fótbolti áhugamál hjá mér, þannig að þegar ég fylgi börnunum eftir úti er ég líka að gera það sem ég hef áhuga á sjálf.“

Hvernig heldurðu þér í góðu formi?

„Ég er mjög virk að eðlisfari og finn mér alltaf eitthvað skemmtilegt að gera. Svo æfi ég sirka fimm sinnum í viku þar sem það er rækt á staðnum þar sem við búum núna. Síðan er ég dugleg að finna mér prógrömm á netinu ef ég nenni ekki í líkamsræktina þannig að það er engin afsökun fyrir að hreyfa sig ekki. Tuttugu mínútur á dag er nóg að mínu mati. Síðan reyni ég að fara út í göngur. Ég dansa mikið heima með dóttur minni. Eins þegar ég fer út með vinkonum mínum á salsaklúbba. Þar mæta allir til að dansa og skemmta sér. Andrúmsloftið er létt og skemmtileg. Þú sérð engan í fýlu að dansa og það kann ég að meta.“

Ragnhildur Sveinsdóttir er búsett í Madrid á Spáni.
Ragnhildur Sveinsdóttir er búsett í Madrid á Spáni. mbl.is/Árni Sæberg

Saknar elsta sonarins mikið

Hvernig tilfinning er það að elsti sonurinn sé fluttur til Ítalíu?

„Bara mjög góð. Ég sakna hans samt rosalega mikið. Ég er mjög stolt af honum. Það gefur mér mestu ánægjuna að hlúa að börnunum og sjá þau komast eins langt og þeir geta í því sem þeir ákveða að leggja fyrir sig.“

Hvernig stendur þú best með börnum þínum?

„Með því að setja þau alltaf í fyrsta sætið. Mér finnst það sjálfsagt. Ég geri það alltaf og hef alltaf gert það fyrir fjölskylduna.“

Er það mikil vinna að fylgja drengjunum eftir í knattspyrnu?

„Já það er mjög mikil vinna. Að skutla og sækja á æfingar alla daga vikunnar og svo eru leikir allar helgar og síðan mót þegar deildin er búin að spila í maí. Þetta er harður heimur sem þeir eru í frá unga aldri ef börnin spila í góðum klúbbum. Það þarf að hafa hugarfarið í lagi og einnig mataræðið. Ég hef reyndar alltaf alið þá upp við mikla hollustu svo ég er ekki mikið að predika mataræði yfir þeim. Við borðum bara holla hreina fæðu og ég kaupi aldrei skyndibita. Þeir reyndar biðja aldrei um slíkt. Ég er yfirleitt bara með heimagerðan mat. Síðan finnst mér jákvætt hugarfar koma manni langt. Það er margt nógu erfitt í lífinu, svo ég æfi mig í að vera þakklát og reyni að kenna þeim það áfram. Ef þeir vilja komast þangað sem þeir stefna verða þeir að leggja mikið á sig. Sem er einmitt það sem þeir hafa gert. Þeir eru einbeittir í sínu og hugsa vel um hvað þeir borða. Þeir eru að spila í hörðum heimi.“

Hvernig undirbýr maður börn fyrir slíkt?

„Með því að kenna þeim að gefast ekki upp og að lífið geti stundum verið eins og rússíbani. Stundum gengur vel og stundum illa. Ef hausinn á okkur er í lagi og maður er sterkur andlega þá eru allir vegir færir.“

Hver er fyrirmyndin þín?

„Örugglega mamma og ömmur mínar. Þær eru allar með mismunandi kosti sem ég hef tekið mér til fyrirmyndar. Kvenleggurinn í fjölskyldunni eru sterkar konur sem kunna ekki að gefast upp. Þær kvarta aldrei og halda alltaf áfram.“

Hvað með þá sem njóta mikillar velgengni en börnin sitja eftir?

„Já ég hef ekki reynslu af slíku. Ég tók þá ákvörðun þegar börnin voru lítil að setja fókusinn á þau. Ég er heppin með hversu jarðbundnir og góðir strákarnir mínir eru, en ég get ekki ímyndað mér að hægt sé að vera hamingjusamur ef börnunum líður ekki eins.“

Ástin kemur þegar hún kemur

Hvað um ástina?

„Já, er ástin ekki yndisleg? Það er til fullt af sætum mönnum þarna úti, en ég vil klára þennan kafla í lífi mínu og er ekki að stressa mig á neinu. Ástin kemur bara þegar hún kemur.“

Hvað skiptir þig mestu máli í fari fólks?

„Það er fyrst og fremst heiðarleiki, hreinskilni, umburðarlyndi og góðmennska. Síðan finnst mér mikilvægt að kunna að taka tillit til annarra og vera skilningsríkur. Þegar kemur að karlmönnum finnst mér einnig jákvætt að vera fyndinn og skemmtilegur og með húmor fyrir sjálfum sér.“

Verður sterkari með árunum

Ragnhildur varð fertug fyrir tveimur árum og þegar hún er spurð að því hvernig henni finnist að eldast segist hún bara vera ánægð með það.

„Mér finnst æðislegt að eldast og finnst ég mýkjast með aldrinum, en á sama tíma verða miklu sterkari. Ég hef góða tilfinningu fyrir því að vera sjálfstæð og finnst ég í raun og veru geta flutt fjöll. Ég vil vera sjálfri mér nóg. Ég er hamingjusöm í eðli mínu og kann betur og betur að meta hlutina í kringum mig.“

Hvað veit enginn um þig?

„Ég held það sé ekkert sem enginn veit. Kannski eru margir sem ekki vita hvað ég hef mikla ástríðu fyrir börnunum mínum. Að koma þeim áfram á góðan stað í lífinu.“

Hver er uppskriftin að því að líta vel út að þínu mati?

„Ég held það sé ekki til nein leyniuppskrift að því, nema bara að hugsa jákvætt til sín og sjá að maður er bara fínn eins og maður er eða í það minnsta alltaf að reyna sitt besta. Að vera ekki að rífa sig niður og muna að maður er ekki verri en hver annar. Vera hamingjusamur því hamigjan skín í gegn og svo er mikilvægt að brosa. Hreyfing bætir og kætir og léttir lundina. Jákvæð hugsun kemur manni langt og síðan að borða hreinan mat og allt í hófi.“

Er orðin þreytt á því að búa ein erlendis

Heldurðu að þú komir heim til Íslands aftur?

„Já, ég hugsa að ég komi heim eftir nokkur ár. Þegar börnin eru komin á réttan aldur. Ég er orðin smávegis þreytt á því að búa ein erlendis og langar að hafa lífið svolítið einfaldara,“ segir hún og játar að það geti tekið á að pússla dagskránni saman þannig að allt smelli.

Hvað gætirðu hugsað þér að leggja fyrir þig hér heima?

„Ég er opin fyrir svo mörgu. Ég elska allt sem tengist líkamsrækt og hreyfingu þannig að kannski verð ég á þeirri línu. Ég er opin fyrir svo mörgu og til í að leyfa hlutunum að koma í ljós.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál